Bjargað eftir þrjá daga á fleka Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. janúar 2013 11:44 Delord hífður um borð úr björgunarbátnum. Nordicphotos/AFP
Skemmtiferðaskip á leið sinni til Suðurskautslandsins tók á sig 1800 kílómetra krók til þess að bjarga siglingarmanni í Suðurhöfum í gær. Skúta mannsins varð fyrir skemmdum suðvestur af áströlsku eyjunni Tasmaníu á föstudag. Alain Delord er 63 ára siglingakappi sem ætlaði að sigla einn og óstuddur hring um jörðina. Hann lagði af stað í október en babb kom bókstaflega í bátinn á föstudag. Hann hafði dúsað tvær nætur á flekanum en skemmtiferðaskipið kom Delord tilbaka þegar farið var að skyggja í gærkvöldi.Alain Delord ásamt farþegum skemmtiferðaskipsins Orion.Nordicphotos/AFPFarþegum á skemmtiferðaskiptinu Orion var ekki sérstaklega skemmt þegar þeim var tilkynnt að gera þyrfti breytingu á áætlun skipsins til þess að koma manninum til bjargar. 53 klukkustundum og 1800 kílómetrum síðar var Delord þó hífður um borð í skipið við mikil fagnaðarlæti farþeganna. Vel hefur farið um Frakkann sem þótti merkilega vel á sig kominn. Honum var komið fyrir í fimm stjörnu svítu á skipinu og hefur gætt sér á lambakjöti og sötrað rauðvín að sögn skipstjórans á Orion.Nánar má lesa um björgunina á vefsíðu ástralska miðilsins news.com.au.Alain Delord á skútu sinni.Nordicphotos/AFP
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Safna fyrir Steinunni sem lést við barnsburð á Landspítalanum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Fleiri fréttir Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Sjá meira