Smitaðist af HIV eftir nokkra mánuði í klámi Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 13. september 2013 13:52 Bay greindist með HIV-veiruna eftir að hafa leikið í tíu klámmyndum.
Klámleikkonan Cameron Bay tilkynnti um það í síðasta mánuði að hún hefði greinst með HIV-veiruna. Í kjölfarið var allri framleiðslu kláms í San Fernando-dalnum í Kaliforníu hætt í nokkra daga. Aðeins eru örfáir mánuðir liðnir síðan Bay lék í sinni fyrstu klámmynd og í henni tók hún þátt í hópkynlífi með tíu manns. Níu myndum síðar greindist hún með veiruna. Sjálf segir Bay að ekki hafi verið notaðir smokkar í neinum af þeim atriðum sem hún lék í. Henni hafi verið sagt að hún ætti ekki einu sinni að vekja máls á notkun verja því að nóg væri til af stúlkum sem gætu tekið hennar stað. „Ég lærði það að það er alltaf einhver yngri og kynþokkafyllri sem er tilbúin að gera hluti sem þú ert ekki til í að gera,“ segir Bay í samtali við Huffington Post, sem var með ítarlega umfjöllun um málið í vikunni, og segir Bay að smokkar ættu að vera valkostur. Í nóvember á síðasta ári voru sett lög um það í Los Angeles, þar sem meirihluti bandarísks kláms er framleitt, að leikarar í klámmyndum þyrftu að nota smokka þrátt fyrir harða andstöðu klámframleiðenda. Að sögn innanbúðarfólks í klámframleiðslu hefur lögunum þó ekki verið fylgt.Fékk nýrnasýkingu eftir fyrsta atriðið Eftir að hafa stundað kynlíf með fimm karlmönnum í fyrsta atriðinu sínu veiktist Bay alvarlega vegna nýrnasýkingar, en öll atriðin voru tekin upp í Los Angeles fyrir utan eitt sem tekið var upp í San Fransisco. Það var atriði fyrir klámframleiðanda sem sérhæfir sig í BDSM-myndum og í atriðinu hafði Bay endaþarmsmök. Henni var boðið að nota smokk en sagðist vilja að mótleikari hennar réði því sjálfur og var smokkur ekki notaður. Í atriðinu var Bay slegin af aukaleikara í annað brjóstið og hlaut hún áverka á brjóstvef. Var henni skipað af lækni að taka sér frí frá klámmyndaleik í tvær vikur á meðan vefurinn jafnaði sig. Að því loknu átti hún að fara í aðgerð en henni hefur nú verið frestað eftir að hún greindist með veiruna. Í sama atriði segir Bay að „mjög slæmir hlutir“ hafi átt sér stað en upplýsir ekki um hvað gekk á. „Við skulum bara segja að það hafi komið svolítið upp á og við hefðum átt að hætta tökum.“ Kærasti Bay, Rod Daily, greindist einnig með HIV-veiruna fyrir stuttu en hann leikur í klámi fyrir samkynhneigða og hefur aldrei leikið á móti Bay, en hún segist vonast til þess að klámleikarar verði meðvitaðri um áhætturnar sem fylgi starfinu og geti tekið upplýstar ákvarðanir. „Á endanum snýst þetta allt um öryggi. Blað um það að þú sért laus við kynsjúkdóma segir ekki neitt.“
Mest lesið Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Innlent Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja Innlent Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Innlent „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ Innlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent „Þjóðin á rétt á að vita“ Innlent Fleiri fréttir Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Sjá meira