Óður bílstjóri olli dauðsfalli Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 4. ágúst 2013 16:46 Bílstjórinn ók inn á hina vinsælu gönguleið Venice í Los Angeles.
Einn lést og ellefu aðrir særðust þegar óður bílstjóri ók niður hóps fólks á vinsælli gönguleið í Los Angeles í Bandaríkjunum í nótt. Ekki er vitað hvað ökumanninum gekk til en nær öruggt þykir að um viljaverk hafi verið að ræða. Hinir særðu voru fluttir á sjúkrahús en á meðal þeirra er ungt barn. Að minnsta kosti einn er lífshættulega slasaður og vart hugað líf, tveir aðrir eru alvarlega slasaðir. Atvikið átti sér stað Venice-gönguleiðinni en hún er víðfræg sem nokkurs konar menningarmiðja Los Angeles-borgar. Á góðri helgi eru um 150 þúsund á eða við brautina. Ljóst er að ökumaðurinn var á miklum hraða þegar hann beygði inn á gangstíginn. Fréttamiðlar vestanhafs hafa eftir vitnum að bílstjórinn hafi haft stjórn á bílnum og gefið í þegar hann nálgaðist fólkið. Öryggismyndavélar náðu myndum af atvikinu en þar má sjá hundruði gesta á Venice-ströndinni reyna að forðast bílinn. Vitnin hafa jafnframt lýst slysstaðnum sem hálfgerðum vígvelli og var gangstéttinn þakin blóði þegar sjúkraflutningamenn komu á vettvang. Bílstjórinn hvarf af vettvangi en hann gaf sig fram við lögreglu seint í nótt. Tilefni voðaverksins liggur þó ekki fyrir og verður maðurinn yfirheyrður í dag.
Mest lesið Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Sjá meira