Var látin mynda meðvitundarlausan viðskiptavin Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 16. október 2013 09:59 Heart Attack Grill er frægt fyrir óhollustu á matseðlinum. mynd/ap
Fyrrverandi starfsstúlka á veitingastaðnum Heart Attack Grill í Las Vegas segir þennan víðfræga stað dapurlegan og ófagmannlegan vinnustað. Hún svaraði spurningum á beinni línu á vefsíðunni Reddit í gær og vandaði staðnum ekki kveðjurnar. Heart Attack Grill, eða Hjartaáfallsgrillið eins og það gæti kallast á íslensku, hefur verið gagnrýnt harðlega fyrir matseðilinn en á honum er meðal annars að finna hinn alræmda Quadruple Bypass-borgara en hann inniheldur hvorki meira né minna en 10 þúsund hitaeiningar. Þá þurfa þeir sem eru þyngri en 160 kíló ekki að borga fyrir matinn sinn. Stúlkan, sem sjálf segist vera grænmetisæta, segist hafa fundið til sektarkenndar þegar fólk í mikilli ofþyngd kom á staðinn til að fá frítt að borða. „Á hverjum degi komu fimm til tíu manns sem uppfylltu kröfur staðarins um ókeypis máltíð. Og þá leið mér illa yfir því að stuðla að slæmu heilsufari þeirra.“ Hún lýsir því þegar framkvæmdastjóri staðarins lét hana taka myndband af viðskiptavini sem misst hafði meðvitund til þess að senda á fjölmiðla, en staðurinn er þekktur fyrir að taka slæmri umfjöllun fagnandi. Til dæmis var sagt frá því á dögunum þegar stofnandi staðarins, Joe Basso, mætti í sjónvarpsútsendingu með ösku í poka. Askan var í raun líkamsleifar viðskiptavinar sem dáið hafði á staðnum.Í yfirlýsingu frá Basso segir hann starfsstúlkuna fyrrverandi vera athyglissjúka og segir hana hafa verið lélegan starfskraft. Hún hafi aldrei reynt að vingast við samstarfsfólk sitt og viðskiptavinir hafi kvartað undan viðmóti hennar.
Mest lesið „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Innlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Erlent Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja Innlent Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Erlent „Þjóðin á rétt á að vita“ Innlent „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ Innlent Fleiri fréttir „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Sjá meira