92 börnum bjargað úr klóm mannræningja Kristjana Arnarsdóttir skrifar 28. september 2013 18:14 Mansal hefur aukist í Kína undanfarin ár. Ástæðan er talin vera takmörkun á barneignum. MYND/AFP
Lögregluyfirvöld í Kína hafa handtekið 301 manns sem grunaðir eru um að tengjast stórum mansalshring þar í landi en alls tókst lögreglunni að bjarga 92 börnum og tveimur konum í aðgerðum sínum. Börnin voru þegar send til skoðunar á sjúkrahús en einhver þeirra dvelja nú á barnaheimilum í Zhengzhou. Aðgerð lögreglunnar er ein sú stærsta sinnar tegundar í fjölmörg ár en rannsókn á mansalshringnum hefur staðið yfir frá því í mars á þessu ári. Lögreglan segir að þeir aðilar sem tengdust mansalshringnum hafi fylgt ákveðnu mynstri. Mannræningjarnir rændu börnunum í Suðvesturhluta Kína og keyrðu síðan með þau í úthverfin þar sem þeim var komið í hendur annarra mannræningja. Zhang Wenli, yfirmaður barnaheimilisins í Zhengzhou, segir að unnið sé að því að finna líffræðilega foreldra barnanna. Mansal hefur aukist í Kína undanfarin ár og er ástæðan talin vera sú takmörkun sem foreldrum er gefin í barneignum, en pör í þéttbýli mega einungis eignast eitt barn. Árið 2011 sögðu lögregluyfirvöld í Kína að frá árinu 2009 hafi rúmlega 13.000 börnum og um 23.000 konum verið bjargað úr klóm mannræningja. Það er Sky News sem greinir frá.
Mest lesið „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Innlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Erlent Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Erlent Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Erlent Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Erlent Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja Innlent Fleiri fréttir Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Sjá meira