NSA braut ítrekað lög um persónuvernd Lovísa Eiríksdóttir skrifar 17. ágúst 2013 07:00 Þjóðaröryggisstofnunin hefur orðið uppvís að því að njósna ólöglega um bandaríska borgara undanfarin fimm ár. Fréttablaðið/AP
Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna (NSA) hefur orðið uppvís að því að brjóta ítrekað lög um persónuvernd síðan bandaríska þingið úthlutaði stofnuninni víðtækari eftirlitsheimildum árið 2008. Samkvæmt upplýsingum sem Edward Snowden sendi frá sér, og Washington Post hefur undir höndum, hefur öryggisstofnunin farið út fyrir lagalegar heimildir sínar mörg þúsund sinnum á ári í fimm ár. Að sögn blaðsins snúast flest brotin um ólöglegar njósnir um Bandaríkjamenn eða erlenda aðila í Bandaríkjunum, sem voru taldir hryðjuverkamenn. Í endurskoðendaskýrslu, sem kom út í maí síðastliðnum, kemur fram að 2.776 óheimilar njósnir öryggisstofnunarinnar hafi átt sér stað á einungis tólf mánuðum, en tekið er fram að um mistök hafi verið að ræða í flestum tilvikum. Sem dæmi gerði forritunarvilla í tölvukerfi NSA það að verkum að stofnunin hleraði, fyrir mistök, innanlandssímtöl í stað símtala sem átti að hlera á milli Bandaríkjanna og Egyptalands. Mannréttindasamtök í Bandaríkjunum hafa farið fram á að yfirmaður eftirlitstofnunar Bandaríkjanna, James Clapper, segi af sér þar sem brotið hefur verið á yfir þúsund saklausra manna, en eftirlitið ákvað að upplýsa ekki um njósnirnar. Alvarlegustu brotin snúa að ólögmætri notkun gagna um yfir 3.000 Bandaríkjamenn og erlenda aðila sem búa í Bandaríkjunum og hafa græna kortið.
Mest lesið Flugmennirnir sviptir flugréttindum Innlent Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Innlent Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Sjá meira