Bresku smyglstúlkurnar sagðar tengjast glæpahring 17. ágúst 2013 23:10 Michaella McCollum Connolly, Melissa Reid og Shane Knowles.
Breska blaðið The Daily Mail segist hafa sannanir fyrir því Melissa Reid, sem setið hefur í gæsluvarðhaldi fyrir að reyna að smygla sex kílóum af kókaíni frá Perú, hafi ekki verið neydd til verksins eins og hún hefur haldið fram. Reid, sem er tvítug, hafi þvert á móti verið tengd glæpagengi á spænsku eyjunni Ibiza þar á meðal Shane Knowles, 37 ára margdæmdum glæpamanni.The Mail on Sunday birtir myndir af skælbrosandi Reid í veislu með Knowles og öðru vinafólki, að því er blaðið heldur fram. Á annarri mynd, sem tekin er af Facebooksíðu Reid, má sjá aðra mynd af henni og Knowles. Þá hefur blaðið það eftir nágrönnum Melissu að hún hafi neytt eiturlyfja eftir að hún flutti til Ibiza til að vinna á bar yfir sumarið. Blaðið heldur því einnig fram að íbúð Reid hafi verið notuð fyrir eiturlyfjaviðskipti og að hún og Michaella McCollum Connolly sem handtekin var með henni í Perú hafi búið saman á Ibiza en ekki bara hist fyrir ferðina örlagaríku eins og þær haldi fram. Þá hafi leigubílstjóri í Lima, höfuðborg Perú, keyrt stúlkurnar á milli verslana og þær hafi virst afslappaðar en ekki verið eins og stúlkur sem neyddar hafi verið til að smygla mörgum kílóum af kókaíni. Shane Knowles hefur oft komist í kast við lögin. Hann missti auga þegar hann var nærri barinn til dauða árið 1999 af mönnum sem tengdust glæpaforingjanum John Palmer, oftast kallaður Goldfinger, á bar á Tenerife. Efnið sem Reid og Connolly voru stöðvaðar með er talið vera um 1,5 milljóna punda virði sem samsvarar um 300 milljónum íslenskra króna.
Mest lesið Flugmennirnir sviptir flugréttindum Innlent Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Fleiri fréttir Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Sjá meira