Erlent

Nýtt tilfelli fuglaflensu í Kína

Fuglaflensuveiran.
Fuglaflensuveiran. MYND/AP
Kínverskur maður í Guangdong-héraði í Kína var í gær greindur með H7N9 fuglaflensuveiru.

Yfirvöld í Guangdond staðfestu þetta í nótt en maðurinn er nú á gjörgæslu. Fregnirnar hafa vakið mikinn ugg í Kína og óttast menn nú að vírusinn dreifist til Hong Kong.

H7N9 er nýtt tilfelli fuglaflensuveirunnar en fyrr á þessu fór hún að smitast úr fuglum í menn.

Nokkur óstaðfest tilfelli hafa komið upp þar sem veiran smitast milli manna. Alls hafa 134 tilfellu verið greind en vírusinn hefur kostað 44 lífið.

Alþjóða heilbrigðismálastofnunin hefur gefið út viðvörun vegna H7N9, enda leikur grunur á að þetta afbrigði veirunnar sé mun skæðara en fyrri tilfelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×