Kínverjar spurðir út í mannréttindi Guðsteinn Bjarnason skrifar 22. október 2013 11:30 Mannréttindabrotum Kínverja mótmælt fyrir utan höfuðstöðvar Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf í morgun. Mynd/AP
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna kallaði fulltrúa kínverskra stjórnvalda á sinn fund í Genf í morgun. Þar viðurkenndu Kínverjarnir að sitthvað vanti upp á, að mannréttindaástandið hjá þeim sé í góðu lagi, en lögðu samt áherslu á að margt hafi áunnist með því að draga úr fátækt, gera endurbætur á dómskerfinu og veita þjóðernisminnihlutum vernd. „Okkur er fullkomlega ljóst að Kína stendur enn frammi fyrir mörgum verkefnum og vandamálum þegar kemur að því að styðja og vernda mannréttindi,” sagði Wu Hailong, fulltrúi kínverska utanríkisráðsins, á fundi Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í morgun. Fundurinn var liður í úttekt ráðsins á mannréttindaástandinu í Kína, en slík úttekt er gerð á fjögurra ára fresti fyrir öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna. Mannréttindasamtök notuðu tækifærið í morgun til að vekja athygli á mannréttindabrotum í Kína, einkum gagnvart Tíbetum og Úígúrum. Einnig voru gagnrýndar harkalegar aðgerðir kínverskra stjórnvalda gegn einstaklingum, sem staðið hafa í baráttu fyrir mannréttindum í Kína. Í Mannréttindaráðinu eiga sæti fulltrúar 47 ríkja. Á fundinum í morgun vöktu mörg þeirra máls á bágri stöðu kvenna, fatlaðra og þjóðernisminnihluta í Kína og kröfðust úrbóta. Einnig var farið fram á að Kínverjar gerðu úrbætur í dómskerfinu, dauðrefsingum verði fækkað og mannréttindasinnum ekki varpað í fangelsi jafn oft og nú tíðkast.
Mest lesið Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Sjá meira