Þetta eru þrjótar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. júní 2013 14:15 Siggi Dúlla við störf með karlalandsliðinu. Mynd/Silfurskeiðin.is
Stjörnumenn fussuðu og sveiuðu þegar Sigurður Sveinn Þórðarson, betur þekktur sem Siggi Dúlla, dró FH upp úr skálinni á bikardrættinum í dag.Leikur Stjörnunnar og FH er ein þriggja viðureigna úrvalsdeildarliða í sextán liða úrslitum keppninnar. Sigurður, sem er liðsstjóri Stjörnunnar auk þess að gegna starfi búningastjóra hjá íslenska karlalandsliðinu, hristi hausinn þegar blaðamaður spurði hann út í viðbrögð félaga hans. Greinilegt var á viðbrögðum þeirra að þeim þótti ljóst að Sigurður myndi ekki reynast heppinn í drættinum. „Menn bjuggust sennilega við þessu. Að mótherjinn yrði erfiður," sagði Sigurður um viðbrögð félaga sinna. Aðrir fulltrúar Stjörnunnar voru Almarr Guðmundsson, formaður knattspyrnudeildar, Logi Ólafsson, þjálfari liðsins, og Jóhann Laxdal, leikmaður liðsins. Aðspurður hvort Stjörnumenn hefðu reiknað með ógæfu frá Sigurði eftir að hafa rýnt í söguna sagði Sigurður: „Ef þeir hefðu rýnt í söguna hefðu þeir komist að öðru. Þeir lentu bara gegn 1. eða 2. deildarliðum í fyrra fyrir utan Fram," sagði Sigurður. Á honum var að merkja að Stjörnustrákarnir mættu vera sáttir við þá andstæðinga sem Sigurður hefði dregið fyrir þá til þessa. „Þetta eru þrjótar," grínaðist Sigurður og nýtti tækifærið til að benda á einfalda staðreynd: „Þeir þurfa að klára FH til að verða bikarmeistarar." Leikurinn fer fram í Garðabænum 19. eða 20. júní.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Það er ekki afsökun heldur staðreynd“ Íslenski boltinn Allir verði að sjá æfingar Thelmu Sport Keflvíkingur keppti í Squid Game Íslenski boltinn Óskar forviða á fullyrðingu Hödda Magg: Á yngsta barnið að borða úti á svölum? Íslenski boltinn Hljóp heilt maraþonhlaup á göngum skólans síns Sport Sérfræðingarnir svara: Albert synti gegn straumnum Íslenski boltinn Sleit hásin í upphitun og missir af HM í fótbolta Fótbolti Sagði dómarann láta eins og hann væri á túr Fótbolti Vatnsbyssum beint að Elvari eftir 28 stiga sýningu Körfubolti Besta-spá 2026: Vöðvarnir hnyklaðir Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Dreymir að minnsta kosti um Evrópu“ Besta-spá 2026: Vöðvarnir hnyklaðir Sérfræðingarnir svara: Albert synti gegn straumnum Keflvíkingur keppti í Squid Game KR - Valur 4-2 | Síst of stór sigur og KR áfram Þroskamerki fyrir KR: „Það sem hefur vantað er andlegur styrkur „Það er ekki afsökun heldur staðreynd“ Óskar forviða á fullyrðingu Hödda Magg: Á yngsta barnið að borða úti á svölum? Varla spilað fótbolta í fjögur ár en skaut Gróttu áfram Damir skaut Grindvíkinga áfram í vítakeppni Viktor í stuði á Skaganum og dramatík í Egilshöll Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn „Þetta eru alltaf risastórir leikir“ „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Samvinna Emils og Birnis gerði gæfumuninn Reykjavíkurslagur KR og Vals færður inn í Egilshöll „Vonandi keppa þeir af alvöru um það að komast í topp þrjá“ Besta-spáin 2026: Skref fyrir skref Sérfræðingarnir svara: Hverjir valda mestum vonbrigðum í sumar? Markaveislan í bikarnum: Nýir menn stimpla sig rækilega inn „Menn hafa alltaf eitthvað að segja“ Kristófer með tvennu er Blikar flugu áfram í bikarnum Djuric skoraði er KA komst áfram í bikarnum Fram - Víkingur 2-4 | Svöruðu seinu jöfnunarmarki ógnarsnöggt Fjögurra marka svar FH-inga sem eru komnir áfram Þróttarar slógu Eyjamenn út úr bikarnum „Finnst vanta framherja“ Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Ægir Jarl mættur til Fram Sjá meira