Báðu um aðra tilraun til lendingar sekúndu fyrir slysið Boði Logason skrifar 7. júlí 2013 23:04 Lögreglumaður skoðar svarta kassann úr vélinni. mynd/afp
Upplýsingar úr svarta kassanum í flugvél Asian flugfélagsins, sem hrapaði í San Francisco um helgina, sýna að flugstjórinn bað flugturninn um aðra tilraun til lendingar stuttu fyrir brotlendinguna. Vélin, sem er af gerðinni Boeing-777, hrapaði á alþjóðaflugvellinum í San Francisco á laugardagkvöld. Tvær kínverskar unglingsstúlkur létust, og 181 slasaðist - þar af 49 alvarlega. Rannsóknarnefnd flugslysa hefur reynt að komast til botns í því hvað það var sem olli því að vélin klessti á varnargarð við enda flugbrautarinnar. Boeing flugvélaframleiðandinn gaf það út í gærmorgun að ekki hafi komið upp vélarbilun í vélinni, og þá sögðu forsvarsmenn flugfélagsins að flugstjórinn og flugmaðurinn væru afar reyndir og hefðu ekki gert nein mistök þegar vélin kom inn til lendingar. Á blaðamannafundi rannsóknarnefndarinnar í gærkvöldi kom hins vegar fram, eftir að lögreglumenn höfðu farið yfir upplýsingar úr svarta kassanum, að flugstjórinn bað flugturninn um leyfi til þess að fá aðra tilraun til lendingar einni og hálfri sekúndu fyrir slysið. Í kjölfarið hafi hann gefið vélinni inn - en það hafi verið of seint. Hún klessti á varnargarð með þeim afleiðingum að stélið rifnaði af henni. Flugmaðurinn og flugstjórinn verða yfirheyrðir á næstu dögum, ásamt öðrum áhafnarmeðlimum.NBC greinir frá.
Mest lesið Brotist inn í Barnaloppuna Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Erlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Innlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Fleiri fréttir Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Sjá meira