Erlent

Sýrlandsstjórn: þriðja heimsstyrjöldin mun ekki stöðva okkur

Elimar Hauksson skrifar
Faisal Muqdad í viðtali við AFP í dag
Faisal Muqdad í viðtali við AFP í dag mynd/AFP
Faisal Muqdad, aðstoðarutanríkisráðherra Sýrlands, er harðorður í garð Bandaríkjastjórnar í viðtali við AFP fyrr í dag.

Hann segir að Sýrlandsstjórn muni ekki hlusta á hótanir Bandaríkjamanna um árásir á landið.

„Sýrlandsstjórn mun ekki breyta afstöðu sinni, jafnvel þó þriðja heimsstyrjöldin skelli á. Enginn Sýrlendingur getur fórnað sjálfstæði þessa lands,“ segir Mugdad.

Spennan í kringum ástandið í Sýrlandi fer stigvaxandi en Barack Obama, Bandaríkjaforseti, vill grípa til aðgerða gagnvart Sýrlandsstjórn og segir trúverðugleika allrar heimsbyggðarinnar í húfi




Fleiri fréttir

Sjá meira


×