Námsferðin fór alveg úr skorðum BBI skrifar 29. október 2012 22:25 Sandy gengur á land í Bandaríkjunum í kvöld. Mynd/AFP
Hátt á fjórða tug íslenskra kennara brá sér í námsferð til New Jersey nú í vikunni en fellibylurinn Sandy hefur sett heimsóknina allrækilega úr skorðum. „Það er frekar óheppilegt að þetta hittist svona á en þetta verður bara eftirminnilegt ævintýri. Það þýðir ekkert að hugsa öðruvísi," segir Jóna Kristín Gunnarsdóttir grunnskólakennari sem lagði af stað til New Jersey ásamt 38 kennurum til að kynna sér nýja skólastefnu. Það hefur verið hægara sagt en gert að kynna sér skólastefnur við þær aðstæður sem nú ríkja í Bandaríkjunum. „Við áttum tildæmis að vera í skólaheimsókn í dag. En skólarnir eru auðvitað lokaðir," segir Jóna. Hún segir þó að þeir sem hafi séð um heimsóknina séu ákaflega lipurlegir og hafi til að mynda fært námskeiðið inn á hótelið í dag. Jóna gerir ráð fyrir því að kennararnir verði kyrrsettir á hótelinu á morgun líka. Fellibylurinn Sandy á að ganga yfir Morristown í New Jersey, þar sem kennararnir eru,í kvöld en enn hefur hann ekki teljandi áhrif á svæðinu. „Við erum bara hérna á hótelinu núna og höfum það gott. Þetta er nú ekki byrjað hér held ég," segir Jóna. „Fyrir okkur er þetta bara dæmigert haustveður. Það losnaði reyndar þakplata á húsi á móti okkur hérna áðan. En annars er þetta rólegt." Með kvöldinu mun veðrið að öllum líkindum versna talsvert. Kennararnir eiga ekki von á því að þurfa að yfirgefa hótelið en reikna með rafmagnsleysi næstu daga. Heimsóknin átti að standa í eina viku og kennararnir koma því heim á föstudaginn næsta. „Við vonum alla vega að við komumst heim þá," segir Jóna.Kennararnir eru staddir í Morristown í New Jersey, þar sem rauða flaggið er á myndinni.Mynd/Google maps
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Fleiri fréttir Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Sjá meira