Allsherjarverkfall lamar Nígeríu 10. janúar 2012 08:00 Nígeríubúar mótmæla ekki aðeins hærra bensínverði heldur einnig áratugalangri spillingu í landinu. Margir héldu á lofti myndum af forsetanum Goodluck Jonathan með horn á hausnum. fréttablaðið/ap
Allsherjarverkfall hófst í Nígeríu í gær til að mótmæla þeirri ákvörðun stjórnvalda að hætta að niðurgreiða bensín. Verkalýðsfélög boðuðu til verkfallsins sem varð til þess að skólar, skrifstofur, verslanir og bensínstöðvar um allt landið lokuðu í gær. Verkfallið stendur um óákveðinn tíma. Þúsundir mótmæltu í höfuðborginni Lagos og í öðrum borgum í gær. Lögregla hefur beitt táragasi auk þess sem fregnir herma að minnst þrír mótmælendur hafi látið lífið. Útgöngubann var í borginni í gærkvöldi og í nótt. Bensínverðið hækkaði um áramótin og kostar lítrinn af bensíni nú tæpan dollar, eða 115 íslenskar krónur. Flestir Nígeríumenn lifa á tveimur dollurum á dag og breytingin hefur mikil áhrif. Fólk mótmælti ekki aðeins hærra bensínverði heldur einnig spillingu í stjórnkerfinu og ofbeldi af höndum íslamista. Forsetinn Goodluck Jonathan hefur varið ákvörðunina og sagt að niðurgreiðslan hafi ekki borgað sig. Hann sagði í sjónvarpsávarpi á laugardag að ákvörðunin varðaði almannahag og hefur lofað að þeir átta milljarðar dollara sem sparist ár hvert við breytingarnar muni fara í uppbyggingu heilbrigðisþjónustu, menntakerfisins og annarra opinberra verkefna. Þá sagði hann að háttsettir embættismenn taki á sig fjórðungslaunalækkun.- þeb
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fleiri fréttir Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Sjá meira