Innlent

Vilja safn og hugsanlega veitingastað í Hegningarhúsið

Hugrún J. Halldórsdóttir skrifar
"Sá verður heppinn sem hreppir hnossið," segir varðstjóri Hegningarhússins sem hættir starfsemi þegar nýtt fangelsi á Hólmsheiði verður tekið í gagnið. Hugrún Halldórsdóttir heimsótti þessa sögulegu byggingu í dag og kannaði nokkra framtíðarmöguleika en til greina kemur að selja húsið.

Það hafa eflaust margir skoðun á því hvað gera eigi við þessa fangelsisbyggingu á Skólavörðustíg. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, vill til dæmis sjá þar safn sem tengist réttarkerfinu.

Guðmundur Einarsson varðstjóri tekur í sama streng og það er ekki skrýtið enda margt áhugavert þarna að sjá, eins og til dæmis gömlu Bæjarþingstofu borgarinnar þar sem Hæstiréttur hafði eitt sinn aðsetur. Og svo nýtur sín þar gamall arkitektúr.

"Hurðirnar eru svo lágar að þær fara í hökuna á mér þegar á labba þannig að ég verð orðinn öryrki þegar ég fer á eftirlaun. Þetta er náttúrulega barn síns tíma," segir hann.

Ögmundur sér einnig fyrir sér veitingastað í þessu forna húsi en nokkrir áhugsamir veitingamenn hafa nú þegar sýnt húsnæðinu áhuga. "Húsið er vel staðsett og án efa ágætlega fallið til slíkra nota," segir hann.

Guðmundur tekur ekki eins vel í þá hugmynd. Hann gæti þó fallist á veitingasölu í garði hússins að sumri til.

Svo gætu gestirnir horfið aftur til ársins 1874 og fengið rétt af fyrsta matseðli Hegningarhússins en samkvæmt honum yrði til dæmis uxakjötssúpa á boðstólnum á sunnudögum. Húsið er friðað en samkvæmt húsfriðunarnefnd ættio önnur starfsemi hæglega að geta tekið við af fangelsisrekstrinum. "Sá verður heppinn sem hreppir hnossið" segir Guðmundur. Hann segir jafnframt að ef veggirnir í húsinu gætu talað þá myndu þeir segja margar sögur.

Mynd úr greininni í Bændablaðinu.Mynd/Þórdís Claessen
Við þetta er svo að bæta að í Bændablaðinu, sem kom út seint á síðasta ári, er fjallað um matarmarkaði á höfuðborgarsvæðinu og þeirri hugmynd velt upp að gera Hegningarhúsið á Skólavörðustíg 9 að „Matarhöll".

Þar gætu gestir keypt ferska íslenska matvöru úr öllum áttum, búvörur, fiskmeti, brauð og annað góðgæti allt árið um kring. Í fangelsisgarðinum, þar sem múrar fengju að víkja, yrði útimarkaður á sumrin og jafnvel jólamarkaður í desember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×