Alexander Scholz: Lokeren virðist henta mér vel Henry Birgir Gunnarsson skrifar 15. nóvember 2012 08:00 Alexander Scholz er hér að vinna auðveldan slag um skallabolta gegn Fylki í sumar. Mynd/Ernir
Pepsi-deildarlið Stjörnunnar þarf að horfa á bak góðum manni því samningar hafa tekist um söluna á Dananum Alexander Scholz til Lokeren. Leikmaðurinn heldur utan til Belgíu í dag og mun væntanlega skrifa undir samning við félagið um helgina. „Ég fer í læknisskoðun á föstudag og svo skrifum við undir samning um helgina ef allt gengur að óskum," sagði Scholz í Boltanum á X-inu í gær en hann átti frábært sumar með Stjörnunni. „Ég vildi fá nýja áskorun og Lokeren virðist henta mér vel. Ég fór til reynslu á dögunum og það gekk frábærlega. Ég gat ekki verið sáttari. Þetta lítur út fyrir að vera fjölskylduklúbbur eins og Stjarnan. Lið rétt fyrir aftan þau bestu og getur gert atlögu að titlinum." Daninn káti hefur mikinn metnað og ætlar sér stóra hluti í framtíðinni. „Ég þarf að standa mig vel hjá Lokeren og þá veit maður aldrei hvað getur gerst í framtíðinni." Scholz er aðeins tvítugur og tók sér frí frá knattspyrnu árið áður en hann kom til Stjörnunnar. Hann vildi ferðast og fór meðal annars til Indlands. „Ég vissi að þetta gæti verið hættulegt fyrir ferilinn minn en þetta gekk allt upp. Það voru samt margir hissa þegar ég tók þessa ákvörðun," sagði Scholz sem er mikill ævintýramaður. Ein af ástæðum þess að hann kom til Íslands var til þess að upplifa landið samhliða knattspyrnunni. „Þetta hentaði mér fullkomlega. Mér hefur liðið vel á Íslandi. Ég hef ferðast mikið og fór hringveginn meðal annars. Þetta er búinn að vera frábær tími sem ég sé ekki eftir. Ég á örugglega eftir að koma aftur til Íslands og hver veit nema ég ljúki ferlinum hér á landi. Ég myndi þá líklega spila með Stjörnunni."
Fótbolti Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gjörbreyttur Luka hefur tekið á því í ræktinni Körfubolti Arftakinn sagður koma frá Hlíðarenda Íslenski boltinn „Bara pæling sem kom frá Caulker“ Fótbolti KR lætur þjálfarateymið fjúka Íslenski boltinn „Vorum búnir að vera miklu betri“ Fótbolti Bönnuðu öllum leikmönnum liðsins að koma inn í landið Sport Uppgjörið: Stjarnan - Afturelding 4-1 | Snéru við dæminu manni fleiri Íslenski boltinn „Þurftum ekkert að vera að drífa okkur“ Fótbolti Musk og Schwarzenegger sendu Hafþóri Júlíusi hamingjuóskir Sport Aflýstu æfingaferð eftir hræðilegar fréttir að heiman Fótbolti Fleiri fréttir Arftakinn sagður koma frá Hlíðarenda „Bara pæling sem kom frá Caulker“ „Vorum búnir að vera miklu betri“ „Þurftum ekkert að vera að drífa okkur“ Uppselt á Evrópuleik KA á Akureyri Gæti enn spilað í úrvalsdeildinni eftir að hafa fallið þrívegis Markasúpur í „Íslendingaslögum“ KR lætur þjálfarateymið fjúka Uppgjörið: Stjarnan - Afturelding 4-1 | Snéru við dæminu manni fleiri Tómas Bent nálgast Edinborg Nýtt útlit hjá Guardiola Aflýstu æfingaferð eftir hræðilegar fréttir að heiman Nýtt undrabarn hjá Arsenal Flúraði sig til minningar um Jota Með átta mörk og sex stoðsendingar í sama leiknum Segja Jóhannes kosta tæpar tíu milljónir króna Flýr Ten Hag og semur við Sunderland Grét þegar hann var kynntur hjá nýju félagi Sjáðu Pedersen jafna metið og Kennie kremja hjörtu Víkinga Sú besta í áfalli og baðst afsökunar Brella Englendinga sem gæti hafa tryggt þeim EM-gullið Spilaði og varð Evrópumeistari fótbrotin Kóngafólkið eys lofi yfir enska liðið Rashford mátaði treyjuna í leik sem átti ekki að fara fram „Þeir refsuðu okkur í dag“ Evrópumót kvenna aldrei betur sótt en nú „Þurftum að fá aðeins ferskt blóð inn í þetta“ „Það er að kosta okkur mikið að nýta ekki færin“ Rúnar Kristinsson: Glaðir með stigið Skrifaði undir nýjan samning eftir að hafa verið svo gott sem farinn Sjá meira