Rútan gjöreyðilagðist er hún skall á vegginn 15. mars 2012 08:00 Eins og sést gjöreyðilagðist rútan við höggið. Fréttablaðið/AP
Alls fórust 28 manns, þar af 22 börn, þegar stórri farþegabifreið var ekið á vegg í umferðargöngum í svissnesku Ölpunum í fyrrakvöld. Farþegarnir voru á heimleið til Belgíu úr skíðaferðalagi. Alls voru 52 manns í rútunni, þar af 46 tólf ára börn úr tveimur belgískum skólum. Flytja þurfti hin börnin 24, sem komust lífs af, á sjúkrahús vegna misalvarlegra meiðsla. Mikil sorg ríkir í Belgíu vegna þessa atburðar. Elio di Rupo, forsætisráðherra Belgíu, sagði þetta mikinn sorgardag. Hann hélt til Sviss í gær að hitta börnin sem lifðu af. Belgíustjórn ákvað einnig að útvega nánustu ættingjum og aðstandendum barnanna flug til Sviss. Óljóst var hvernig slysið varð, en vitað er að bifreiðin snerist til í göngunum og fór á fullri ferð beint á vegg í útskoti. Stór hluti bifreiðarinnar gjöreyðilagðist við höggið. „Það hafa orðið nokkur alvarleg slys í Valais, en ekkert í líkingu við þetta með svona mörgum dauðsföllum ungs fólks," segir Christian Varone lögregluforingi í svissnesku kantónunni Valais. Slysið varð þar skammt frá borginni Sierra.- gb
Mest lesið Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Fleiri fréttir Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Sjá meira