Erlent

Myrti níu börn og sjö fullorðna

Eldri maður situr hjá líki drengs sem hermaðurinn myrti.Fréttablaðið/AP
Eldri maður situr hjá líki drengs sem hermaðurinn myrti.Fréttablaðið/AP
Bandarísk stjórnvöld búa sig nú undir mótmæli og hefndaraðgerðir, eftir að bandarískur hermaður skaut sextán óbreytta borgara til bana í suðurhluta Afganistan aðfaranótt sunnudags. Þar af voru níu börn. Engar skýringar eru á ódæðunum, en samkvæmt AP fréttastöðinni gekk maðurinn út af herstöð sinni að nóttu til og réðst inn á allavega þrjú heimili í nágrenninu og skaut á íbúana. Hamid Karzai, forseti Afganistan, sendi frá sér harðorða yfirlýsingu í gær, þar sem hann sagði morðin ófyrirgefanleg. Hann krafðist skýringa frá yfirvöldum í Washington. - hhs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×