Gilani stefnt fyrir vanvirðingu 17. janúar 2012 03:00 Yusuf Raza Gilani, forsætisráðherra Pakistans, hefur verið stefnt fyrir vanvirðingu við hæstarétt landsins. Nordicphotos/AFP
Hæstiréttur í Pakistan hefur stefnt forsætisráðherra landsins, Yusuf Raza Gilani, fyrir vanvirðingu við réttinn. Hann hefur þráfaldlega neitað tilmælum réttarins um að taka upp á ný rannsókn á meintum auðgunarbrotum forseta landsins, Asif Ali Zardari. Gilani hefur verið boðaður fyrir dóminn á fimmtudag til að standa fyrir máli sínu. Málið þykir undirstrika óvissuna sem ríkir á stjórnmálasviði landsins, en stjórnin á líka í deilum við yfirstjórn hersins. Telja margir að herinn standi á bak við þennan þrýsting dómara. Þegar Zardari var kjörinn árið 2008 voru yfirvöld í Sviss að rannsaka mál þar sem hann var meðal annars grunaður um peningaþvætti. Rannsókninni var hins vegar skotið á frest þar sem forsetinn naut friðhelgi. Það hefur síðar orðið bitbein milli stjórnvalda og hæstaréttar sem segir friðhelgi leiðtoganna stangast á við stjórnarskrá. Gilani og Zardari hafa að undanförnu verið ósparir við að gagnrýna afskipti hersins. Lét Gilani meðal annars þau orð falla að í deilum hers og stjórnvalda stæði valið milli „lýðræðis og einræðis“. Stjórnin stóð af sér vantrauststillögu í gær, en óróanum er þó hvergi nærri lokið. - þj
Mest lesið „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Innlent TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Erlent Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Erlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Innlent Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Innlent Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Innlent Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Veður Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Innlent Fleiri fréttir TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Sjá meira