"Ísrael elskar Íran" - ungmenni nota Facebook til að stilla til friðar 26. mars 2012 21:30 Pilturinn heldur á ísraelsku vegabréfi á meðan stúlkan veifar sínu íranska. mynd/Facebook
Á meðan diplómatar og blaðamenn rýna í orðræður stjórnarmanna í Ísrael, Íran og Bandaríkjunum og leita jafnframt eftir vísbendingum um mögulegar hernaðaraðgerðir gegn kjarnorkurannsóknarstöðvum í Íran, þá hafa nokkur ísraelks ungmenni tekið höndum saman og hrundið af stað herferð á samskiptasíðum. Allt er þetta gert í þeirri von um að koma í veg fyrir stríð milli landanna. Herferðin er einfaldlega kölluð „Ísrael elskar Íran." Hún hófst á samskiptasíðunni Facebook og hefur í kjölfarið vakið mikla athygli. Þar var grafíski hönnuðurinn Ronny Edry sem skipulagði herferðina ásamt eiginkonu sinni, Michal Tamirm. „Það gefur auga leið að Ísraelar og Íranir verða að óttast hvor aðra ef átök eiga að brjótast út," sagði Edry í viðtali við fréttastofuna ABC. Hann birti nýlega myndband á heimasíðu herferðarinnar þar sem hann segist hreint ekki óttast Írani. „Ég hata ykkur ekki. Ég þekki ykkur ekki. Íranir hafa aldrei gert neitt á minn hlut. Ég hef ekki einu sinni Írana - nema einu sinni reyndar - það var í skemmtigarði í París... fínasti gaur." Á Facebook-síðu herferðarinnar er urmull ljósmynda af Ísraelum sem halda á skilti sem á stendur: „Íranir, við elskum ykkur." Undirfyrirsögn ljósmyndanna er: „Við munum aldrei varpa sprengjum á ykkur." Eins og áður segir hefur herferðin vakið mikla athygli - bæði í Ísrael sem og Íran. Hún hefur fengið tæplega 40.000 „like" á Facebook. Þá hafa safnast rúmlega 16.000 dollarar. Edry og Tamirm ætla að nota peninginn til að prenta plaköt og skilti. Ein vinsælasta myndin á Facebook-síðu herferðarinnar sýnir ungt par í faðmlögum. Þau kyssast innilega. Pilturinn heldur á ísraelsku vegabréfi á meðan stúlkan veifar stolt sínu íranska. „Íranskar stelpur eru kynþokkafullar," skrifar kærastinn við myndina. „Þó svo að við komum frá mismunandi málsvæðum þá hefur menningararfurinn aldrei staðið í vegi fyrir ástinni. Löndin deila sömu gildum hvort eð er - þess vegna gengur þetta upp." Hægt er að nálgast herferðina á Facebook hér.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Sjá meira