Zlatan með fjögur glæsileg mörk í sigri á Englandi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. nóvember 2012 21:28 Nordic Photos / Getty Images
Zlatan Ibrahimovic skoraði öll fjögur mörk Svía þegar að liðið vann 4-2 sigur á Englandi í vígsluleik á nýjum leikvangi í Stokkhólmi. Friends Arena heitir nýi völlurinn og tekur 50 þúsund manns í sæti. Það þótti vel við hæfi að Zlatan Ibrahimovic, ein allra mesta knattspyrnuhetja Svía frá upphafi, skuli hafa skorað fyrsta markið á nýja vellinum en það gerði hann á 20. mínútu. Englendingar náðu þó að snúa leiknum sér í vil á þriggja mínútna kafla um stundarfjórðungi síðar. Fyrst skoraði Danny Welbeck gott mark eftir fyrirgjöf Ashley Young og varnarmaðurinn Steven Caulker kom svo Englandi yfir eftir sendingu Steven Gerrard úr aukaspyrnu. Caulker var að spila sinn fyrsta A-landsleik í kvöld en Gerrard sinn hundraðasta. Zlatan var þó ekki búinn að segja sitt síðasta - síður en svo. Síðustu mínútur leiksins voru einfaldlega eign hans. Hann jafnaði metin í 2-2 með bylmingsskoti á 77. mínútu. Sjö mínútum síðar skoraði hann beint úr aukaspyrnu og svo fjórða markið á 90. mínútu, en það var sérlega glæsilegt. Joe Hart, markvörður Englands, var þá kominn úr eigin vítateig til að skalla boltann frá. Zlatan sneri sér þá við, náði til boltans með glæsilegri bakfallsspyrnu og setti boltann í netið af um 30 metra færi.
Fótbolti Mest lesið Kallar eftir naglasnyrtingu á Króknum Körfubolti Svíinn sjóðheitur í lokin og McIlroy stimplaði sig inn Golf „Halda að við séum í einhverju stríði en hann er minn maður“ Sport Grindavík - Tindastóll 89-94| Tindastóll heldur lífi í einvíginu Körfubolti „Ég er búin að bíða eftir þessu lengi“ Golf Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Enski boltinn „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Fótbolti Segir NBA Europe vera frábært tækifæri fyrir körfubolta Körfubolti Biðst afsökunar á „óafsakanlegri hegðun“ Golf FIFA stefni öryggi leikmanna í hættu á HM Fótbolti Fleiri fréttir „Ég vildi að hann væri skoskur“ Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Víkingar áfram eftir framlengda spennu Bikarævintýri Reyknesinga og Garðbæinga Diljá með fimm mörk á tveimur vikum Kalla eftir brottrekstri Southampton vegna njósnanna FIFA og Sádar í eina sæng „Stríðshetjur“ Íran lagðar af stað á HM FIFA stefni öryggi leikmanna í hættu á HM Búist við því að Carrick skrifi undir tveggja ára samning um helgina „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Heskey yngri tryggði City titil gegn United Mitoma missir af HM og leiknum gegn Íslandi „Fyrir þjálfaranum er ég fjórði besti framherjinn“ Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Skilaboð um forsetann fjarlægð úr stúkunni „Ég tek fulla ábyrgð“ „FH er bara á sinni vegferð“ Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Elías bikarmeistari í Danmörku Úrslitaleiknum gæti verið frestað vegna njósnamálsins Ægir sló KA út og bikarmeistararnir flengdir Glódís bikarmeistari annað árið í röð Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Trúir ekki öðru en að hann verði áfram Benóný stýrði fögnuðinum Strákarnir læri af biturri reynslu Arnars með Davíð Oddssyni í Japan Sjáðu Foden stela senunni í sigri City „Eins og súpa sem vantar salt og pipar“ Sjá meira