Erlent

Hvetur fjölmiðla til að birta ekki myndböndin

Frá blaðamannafundinum í Frakklandi í dag.
Frá blaðamannafundinum í Frakklandi í dag. mynd/AP
Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, biðlaði í dag til fréttastöðva um að birta ekki myndbönd sem bárust frá fjöldamorðingjanum Mohamed Merah.

Grunur lék á að Merah hefði kvikmyndað ódæðisverk sín - þetta var síðan staðfest í dag þegar arabíska sjónvarpsstöðin al-Jazeera fékk myndböndin í hendurnar.

Merah var felldur af sérsveit frönsku lögreglunnar í íbúð sinni í Toulouse í Frakklandi fyrir helgi. Umsátursástand hafði ríkt um fjölbýlishúsið í rúman sólarhring.

Merah er grunaður um að hafa myrt sjö manns í suðurhluta Frakklands á síðustu vikum þar á meðal þrjú börn við gyðingaskóla í Toulouse.

Á blaðamannafundi í dag sagði Sarkozy að sjónvarpsstöðvarnar yrðu að sýna fjölskyldum fórnarlambanna virðingu og því ættu þær ekki að birta myndskeiðin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×