Chelsea tapaði úrslitaleiknum - Cahill fékk rautt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. desember 2012 12:24 Paolo Guerrero fagnar hér sigurmarki sínu. Mynd/Nordic Photos/Getty
Rafael Benitez tókst ekki að gera Chelsea að Heimsmeisturum félagsliða í fótbolta því Evrópumeistararnir töpuðu 0-1 á móti Corinthians frá Brasilíu í úrslitaleiknum í Japan. Paolo Guerrero, fyrrum leikmaður Bayern Munchen, skoraði eina mark leiksins með skalla á 69. mínútu þegar hann var fyrstur að átta sig í teignum eftir að Gary Cahill hafði komist fyrir skot. Þetta er í annað skiptið sem Corinthians vinnur þennan titil (líka 2000) en jaframt í fyrsta sinn síðan 2006 þar sem fulltrúi Meistaradeildar Evrópu vinnur ekki mótið. Chelsea pressaði mikið undir lok leiksins og Fernando Torres fékk meðal annars algjört dauðafæri til þess að jafna metin en lét markvörð Corinthians verja frá sér úr opnu færi. Chelsea-menn létu Brasilíumennina pirra sig á lokakaflanum og Gary Cahill, miðvörður Chelsea, fékk rauða spjaldið á 89. mínútu fyrir að slá til leikmanns Corinthians. Torres skoraði reyndar mark í uppbótartíma en það var réttilega dæmt af vegna rangstöðu. Paolo Guerrero var heldur betur hetja brasilíska liðsins í þessari keppni því hann skoraði einnig sigurmarkið í undanúrslitaleiknum á móti Al-Ahly.
Enski boltinn Fótbolti Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Fleiri fréttir Heimavöllur PSG ónothæfur eftir hitabylgjur sumarsins Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Myndi taka kúlu fyrir Infantino Baleba færist nær United Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn „Fann í líkama, hjarta og sál að nú væri komið gott“ Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Arsenal-goðsögn að taka við Senegal Sjá meira