Erlent

Öflugur skjálfti í Mexíkó

Mexíkó borg.
Mexíkó borg.
Jarðskjálfti upp á 7,6 á richter reið yfir nærri Mexíkó borg á sjöunda tímanum í kvöld. Samkvæmt Boston Herald flýðu starfsmenn háhýsa í ofboði út á götur þar sem háhýsin sveifluðust í sterkum skjálftanum sem var langur, samkvæmt bandarískum fjölmiðlum.

Upptök skjálftans voru á tíu kílómetra dýpi suðvestur af smábænum Ometepec. Ekki er vitað um mannfall eða skemmdir. Við fyrstu sýn virðist skjálftinn ekki hafa valdið miklum skemmdum. En talsverð skelfing greip um sig. Símasamband lá niðri í Mexíkó borg og umferð fór úr skorðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×