Óeirðir vegna ásakana um lauslæti í Gautaborg 18. desember 2012 21:17 Skjáskot úr myndbandinu sem finna má á vef VG.
Hundruð unglinga veittu unglingsstúlku eftirför í Gautaborg í morgun og lömdu, eftir að hún var sökuð um að hafa birt nöfn og myndir af fjölda stúlkna úr grunnskóla, þar sem þær voru sagðar lauslátar. Lögreglan handtók hátt í 30 ungmenni vegna málsins en þeir yngstu sem tóku þátt í óeirðunum voru 13 ára gamlir. Atvikið átti sér stað skammt frá skólanum sem krakkarnir stunda. Meðal annars birtust myndir á Instagram af stúlkum og þær sagðar hafa stundað kynlíf með fjölda drengja. Í kjölfarið skipulagði hópur ungmenna, sem voru nafn- og myndgreindir, að hefna sín á stúlkunni sem þau töldu standa á bak við ásakanirnar. Og ekki stóð á mætingunni, því hundruð unglinga komu saman, og réðust meðal annars á stúlku, sem er sautján ára gömul - og sögð standa á bak við myndbirtinguna - með ofbeldi. Lögreglan kom á vettvang en ungmennin brugðust þá hin verstu við og köstuðu grjóti og snjóboltum í laganna verði. Stúlkunni sem er sögð standa á bak við myndbirtinguna, var bjargað af lögreglu, eftir að múgurinn hafði tuskað hana til. Hún reyndist þó ekki hættulega slösuð, en var mjög brugðið eftir atvikið. Hún er þegar komin með lögfræðing vegna málsins. Samkvæmt norska fréttavefnum VG neitar stúlkan að hafa staðið á bak við myndbirtinguna. Norskri fjölmiðlar ræddu við nokkra unglinga sem tóku þátt í óeirðunum, en þar sagði einn piltur að hann vildi einfaldlega hefnd. Ein stúlka sagði systir sín hefði sýnt sér mynd af henni þar sem hún var kölluð „hóra" og það hafi verið sárt að upplifa slíkt. Skólinn verður lokaður á morgun af ótta við önnur uppþot. Að minnsta kosti 27 ungmenni voru handtekin vegna málsins. Hægt er að hofa á myndband af árásinni á vef VG hér.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Fleiri fréttir Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Saka borgina um að víkja sér undan ábyrgð Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Sjá meira