Erlent

Milljónir manna fylgdust með almyrkva á sólu

Talið er að milljónir manna hafi fylgst með hinu sjaldgæfa fyrirbrigði almyrkva á sólu í Ástralíu í gærdag.

Hlutar af ríkinu Queensland voru í svarta myrkri í um tvær mínútur þegar sólmyrkvinn náði hámarki.

Sólmyrkvi þessi myndast þegar tunglið er á milli sólarinnar og jarðarinnar og skyggir þar með á sólina. Næsti almyrkvi sólarinnar á jörðinni verður ekki fyrr en í mars árið 2015.

Almyrkvinn var happafengur fyrir ferðamannaþjónusutuna í Ástralíu en dæmi eru um að menn hafi pantað hótelherbergi þar með þriggja ára fyrirvara til að geta fylgst með honum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×