Hvít-Rússar og Svíar í diplómatískri deilu 9. ágúst 2012 06:44 mynd/AP
Hvít-Rússar og Svíar deila nú um leikfangabangsa sem féllu af himnum ofan. Málið hófst þegar sænskt almannatengslafyrirtæki dreifði 800 böngsum til Hvít-Rússa úr flugvél. Bangsarnir féllu til jarðar í litlum fallhlífum en á þeim voru hvatningarorð til landsmanna um að berjast fyrir mannréttindum. Stjórnmálafrelsi er af skornum skammti í Hvíta-Rússlandi. Þykja yfirvöld ganga afar hart fram gegn andófsmönnum í landinu en stjórnarandstæðingar hafa átt erfitt uppdráttar í landinu frá því að Alexander Lúkasjenkó, forseti Hvíta-Rússlands, náði endurkjöri árið 2010. Lúkasjenkó rak yfirmenn flughersins og landamæravörslu Hvíta-Rússlands stuttu eftir atvikið og er það líklega í fyrsta skipti sem leikfangabangsar hafa steypt hernaðarleiðtogum af stóli. En yfirvöld í Hvíta-Rússlandi létu ekki þar við sitja. Nú hafa allir erindrekar Svíþjóðar í Hvíta-Rússlandi verið reknir úr landi. Sendiráði Hvíta-Rússlands í Stokkhólmi var síðan lokað í þokkabót. Þessi hörðu viðbrögð ríkisstjórnar Lúkasjenkó hafa vakið mikla athygli í Svíþjóð. Á Twittersíðu sinni í gær sagði Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, að ótti Lúkasjenkó við aukin mannréttindi í Hvíta-Rússlandi hefði nú náð nýjum hæðum.
Mest lesið Táningar reka veitingastað: „Maður verður að hafa fyrir lífinu“ Innlent Stöðvarskyldan snýr aftur: Eykur öryggi farþega og neytendavernd Innlent Biðin eftir leikskólaplássi kostaði móður vinnuna Innlent „Þegar þú verður ráðherra verður þú að tala af ábyrgð“ Innlent Hildur vill leiða áfram en Guðlaugur loðinn í svörum Innlent Fráfarandi starfsmaður Sólheima: „Eins og ég sé að sleppa frá einangruðu einræðisríki“ Innlent Nennti ekki að tala við „atvinnubetlara“ og sagði henni að fokka sér Innlent Trump fær konunglegar móttökur í Bretlandi Erlent Ráðast í frekari rannsókn á andláti kvennanna sem létust í Laos Erlent Ekkert bólaði á ræðumanni Innlent Fleiri fréttir Evrópa sein með nýtt loftslagsmarkmið vegna óeiningar Opna tímabundna flóttaleið Ráðast í frekari rannsókn á andláti kvennanna sem létust í Laos Trump fær konunglegar móttökur í Bretlandi „Markmið ríkisstjórnar Ísraels er augljóst þegar við höldum áfram að verða vitni að tortímingu Palestínumanna“ Fara fram á dauðarefsingu yfir Robinson Nálægt því að draga úr flæðinu vegna drónaárása Hafa engar skýringar á margföldum gammablossa Enn ein ásiglingin við rifið umdeilda Hryðjuverkaákærum vísað frá Samþykkja að framselja Úkraínumann vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Trump-liðar heita hefndum Nefnd SÞ segir Ísraelsmenn hafa framið þjóðarmorð á Gasa Látlausar sprengjuárásir á Gasa í nótt Trump höfðar 15 milljarða dala mál gegn New York Times Sagði frá fyrirætlunum sínum í SMS-i fyrir morðið Bandaríkin lýstu yfir fullum stuðningi við fyrirætlanir Ísraelsstjórnar Drápu þrjá í annarri árás á meinta smyglara Conor McGregor dregur forsetaframboðið til baka NATO og Rússland „augljóslega“ í stríði Stórauka útgjöld til varnarmála Tinder-svindlarinn handtekinn í Georgíu Fordæma ummæli Musk á mótmælum gegn útlendingum Íslendingur dæmdur í þrettán ára fangelsi í Rússlandi Kallaði eftir aftöku heimilislauss fólks: „Drepa þau bara“ Svarar til saka fyrir morð á „blóðuga sunnudeginum“ AfD þrefalda fylgi sitt í fjölmennasta sambandslandinu Brueckner neitar að ræða við bresk lögregluyfirvöld Kalla rússneska sendiherrann á teppið Segir byssumanninn aðhyllast vinstri hugmyndafræði Sjá meira
„Markmið ríkisstjórnar Ísraels er augljóst þegar við höldum áfram að verða vitni að tortímingu Palestínumanna“