Beckham með draumamark og sparkaði í liggjandi mann Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. júlí 2012 23:00
David Beckham skoraði glæsilegt mark úr aukaspyrnu fyrir Los Angeles Galaxy gegn San Jose Eartquakes í MLS-deildinni í gær. Gestirnir frá Kaliforníu komust í 3-1 og útlit fyrir að Beckham gæti gengið stoltur frá leiknum og sent skýr skilaboð til Stuart Pearce. Beckham var sem kunnugt er ekki valinn í landsliðshóp Breta fyrir Ólympíuleikana í sumar. Skiptar skoðanir eru um ákvörðun landsliðsþjálfarans Stuart Pearce en Beckham hefur meðhöndlað málið af fagmennsku og sagst munu styðja liðið með ráðum og dáðum. Eitthvað virðist hann þó vera pirraður ef marka má leikinn í gærkvöldi. San Jose hefur getið sér gott orð á tímabilinu fyrir að gefast aldrei upp og sú var raunin í gær. Heimamenn jöfnuðu í 3-3 og tryggðu sér að lokum 4-3 sigur. Óhætt er að segja að Beckham hafi verið í pirraðri kantinum og lét skapið hlaupa með sig í gönur í viðbótartíma. Þá lá leikmaður San Jose, Sam Cronin, meiddur á vellinum. Beckham þótti greinilega lítið til meiðsla Cronin koma og sparkaði bolta í áttina til hans. Þrátt fyrir að Beckham hafi verið í um 25 metra fjarlægð hitti hann boltanum beint í Cronin sem brást illa við og upp úr sauð. Beckham uppskar gult spjald og lætin héldu áfram eftir að flautað var til leiksloka. Óhætt er að segja að Beckham hafi verið heppinn að sleppa með gult spjald. Hann verður þó engu að síður í banni í næsta leik vegna uppsafnaðra gulra spjalda. Mark Beckham má sjá í spilaranum að ofan og með því að smella hér. Atvikið þar sem Beckham spyrnir boltanum í Cronin má sjá hér.
Fótbolti Tengdar fréttir Fjarvera Beckham mun ekki hafa áhrif á sölu miða í London Fjarvera David Beckham í landsliðshópi Breta á Ólympíuleikunum í London sem hefst eftir fjórar vikur mun ekki hafa áhrif á miðasölu á knattspyrnuleiki leikanna. 30. júní 2012 18:30 Gary Lineker gagnrýnir "meðferðina" á Beckham Gary Lineker, knattspyrnuspekingur og fyrrum landsliðsmaður Englendinga, gegnrýndi það á twitter-síðu sinni í dag hvernig farið var með David Beckham í kringum valið á breska Ólympíuliðinu. Beckham var valinn í úrtakshópinn en í morgun kom svo í ljós að hann verður ekki valinn í breska landsliðið. 28. júní 2012 13:45 Beckham ekki valinn í Ólympíulið Breta David Beckham verður ekki með breska fótboltalandsliðinu á Ólympíuleikunum í London en hann staðfesti þetta í yfirlýsingu sem hann sendi Associated Press. Þetta kemur nokkuð á óvart en flestir bjuggust örugglega að Beckham yrði með breska liðinu á leikunum. 28. júní 2012 11:03 Redknapp: Pearce getur gleymt þvi að fá riddaragráðuna Harry Redknapp, fyrrum stjóri Tottenham, hefur tjáð sig um þá ákvörðun Stuart Pearce að velja ekki David Beckham í Ólympíulandslið Breta. Hann segir Pearce geta gleymt þvi að fá riddaragráðu í framtíðinni. 29. júní 2012 11:45 Mest lesið Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Fótbolti Fleiri fréttir Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Real Madrid - Real Sociedad | Orri heimsækir Madríd Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Breiðablik - Csíkszereda | Blikar stefna aftur á Evrópubikarinn Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Sjá meira
Fjarvera Beckham mun ekki hafa áhrif á sölu miða í London Fjarvera David Beckham í landsliðshópi Breta á Ólympíuleikunum í London sem hefst eftir fjórar vikur mun ekki hafa áhrif á miðasölu á knattspyrnuleiki leikanna. 30. júní 2012 18:30
Gary Lineker gagnrýnir "meðferðina" á Beckham Gary Lineker, knattspyrnuspekingur og fyrrum landsliðsmaður Englendinga, gegnrýndi það á twitter-síðu sinni í dag hvernig farið var með David Beckham í kringum valið á breska Ólympíuliðinu. Beckham var valinn í úrtakshópinn en í morgun kom svo í ljós að hann verður ekki valinn í breska landsliðið. 28. júní 2012 13:45
Beckham ekki valinn í Ólympíulið Breta David Beckham verður ekki með breska fótboltalandsliðinu á Ólympíuleikunum í London en hann staðfesti þetta í yfirlýsingu sem hann sendi Associated Press. Þetta kemur nokkuð á óvart en flestir bjuggust örugglega að Beckham yrði með breska liðinu á leikunum. 28. júní 2012 11:03
Redknapp: Pearce getur gleymt þvi að fá riddaragráðuna Harry Redknapp, fyrrum stjóri Tottenham, hefur tjáð sig um þá ákvörðun Stuart Pearce að velja ekki David Beckham í Ólympíulandslið Breta. Hann segir Pearce geta gleymt þvi að fá riddaragráðu í framtíðinni. 29. júní 2012 11:45