Fótbolti

Beckham með draumamark og sparkaði í liggjandi mann

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
David Beckham skoraði glæsilegt mark úr aukaspyrnu fyrir Los Angeles Galaxy gegn San Jose Eartquakes í MLS-deildinni í gær. Gestirnir frá Kaliforníu komust í 3-1 og útlit fyrir að Beckham gæti gengið stoltur frá leiknum og sent skýr skilaboð til Stuart Pearce.

Beckham var sem kunnugt er ekki valinn í landsliðshóp Breta fyrir Ólympíuleikana í sumar. Skiptar skoðanir eru um ákvörðun landsliðsþjálfarans Stuart Pearce en Beckham hefur meðhöndlað málið af fagmennsku og sagst munu styðja liðið með ráðum og dáðum. Eitthvað virðist hann þó vera pirraður ef marka má leikinn í gærkvöldi.

San Jose hefur getið sér gott orð á tímabilinu fyrir að gefast aldrei upp og sú var raunin í gær. Heimamenn jöfnuðu í 3-3 og tryggðu sér að lokum 4-3 sigur.

Óhætt er að segja að Beckham hafi verið í pirraðri kantinum og lét skapið hlaupa með sig í gönur í viðbótartíma. Þá lá leikmaður San Jose, Sam Cronin, meiddur á vellinum. Beckham þótti greinilega lítið til meiðsla Cronin koma og sparkaði bolta í áttina til hans.

Þrátt fyrir að Beckham hafi verið í um 25 metra fjarlægð hitti hann boltanum beint í Cronin sem brást illa við og upp úr sauð. Beckham uppskar gult spjald og lætin héldu áfram eftir að flautað var til leiksloka.

Óhætt er að segja að Beckham hafi verið heppinn að sleppa með gult spjald. Hann verður þó engu að síður í banni í næsta leik vegna uppsafnaðra gulra spjalda.



Mark Beckham má sjá í spilaranum að ofan og með því að smella hér.


Atvikið þar sem Beckham spyrnir boltanum í Cronin má sjá hér.



Tengdar fréttir

Gary Lineker gagnrýnir "meðferðina" á Beckham

Gary Lineker, knattspyrnuspekingur og fyrrum landsliðsmaður Englendinga, gegnrýndi það á twitter-síðu sinni í dag hvernig farið var með David Beckham í kringum valið á breska Ólympíuliðinu. Beckham var valinn í úrtakshópinn en í morgun kom svo í ljós að hann verður ekki valinn í breska landsliðið.

Beckham ekki valinn í Ólympíulið Breta

David Beckham verður ekki með breska fótboltalandsliðinu á Ólympíuleikunum í London en hann staðfesti þetta í yfirlýsingu sem hann sendi Associated Press. Þetta kemur nokkuð á óvart en flestir bjuggust örugglega að Beckham yrði með breska liðinu á leikunum.

Redknapp: Pearce getur gleymt þvi að fá riddaragráðuna

Harry Redknapp, fyrrum stjóri Tottenham, hefur tjáð sig um þá ákvörðun Stuart Pearce að velja ekki David Beckham í Ólympíulandslið Breta. Hann segir Pearce geta gleymt þvi að fá riddaragráðu í framtíðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×