Innlent

Fangelsið að Sogni opnað

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hélt ávarp við opnunina.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hélt ávarp við opnunina. mynd/ innanríkisráðuneytið.
Nýtt fangelsi að Sogni í Ölfusi var formlega tekið í notkun þann 1. júní síðastliðinn. Fangelsið er skilgreint sem „opið" fangelsi og verður það rekið sem útibú frá öryggisfangelsinu á Litla-Hrauni. Gert er ráð fyrir að vista þar allt að 20 fanga.

Fangelsið að Sogni leysir af hólmi fangelsi það sem rekið var að Bitru og tekið var í notkun á árinu 2010. Gerðar hafa verið töluverðar endurbætur á húsnæðinu sem áður hýsti réttargeðdeild sem var flutt á Klepp í Reykjavík. Þar starfa átta fangaverðir og eftir því sem fram kemur á vef innanríkisráðuneytisins er aðbúnaður þar góður.

Við opnunina á föstudag bauð forstöðumaður fangelsisins, Margrét Frímannsdóttir, gesti velkomna. Til máls tóku Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, Páll E. Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar, Björgvin G. Sigurðsson, formaður allsherjarnefndar Alþingis, Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri sveitarfélagsins Ölfuss, Sigurður Guðmundsson, formaður fangavarðafélagsins og sr. Hreinn Hákonarson, fangelsisprestur sem blessaði starfsemi fangelsisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×