Framdi sjálfsmorð eftir að vera neydd til að giftast nauðgara sínum 15. mars 2012 07:26
Miklar deilur og fjölmiðlaumræða hefur blossað upp í Marokkó í framhaldi af því að aðeins 16 ára gömul stúlka sem var fórnarlamb nauðgunar framdi sjálfsmorð. Málið hefur einnig vakið töluverða athygli utan Marokkó en stúlkan Amina að nafni var neydd af dómara til þess að giftast manninum sem nauðgaði henni. Foreldrar Aminu kærðu nauðgunina á síðasta ári en nýlega ákvað dómarinn sem fékk málið inn á sitt borð að í stað þess að nauðgarinn hlyti refsingu skyldi hann giftast Aminu þótt hún væri algerlega mótfallin slíkum ráðahag. Í framhaldinu svipti Amina sig lífi með því að taka inn rottueitur á heimili mannsins sem er tíu árum eldri en hún. Umræðan í Marokkó snýst einkum um refsilöggjöf landsins sem margir vilja að sé breytt í kjölfar þessa máls. Eins og refsilöggjöfin er í dag getur nauðgari sloppið við refsingu fyrir glæp sinn ef hann giftist fórnarlambi sínu. Fjöldi slíkra giftinga hefur farið fram að loknum dómsúrskurði en með slíkum ráðahag telja fjölskyldur fórnarlambanna að heiðri fjölskyldunnar sé bjargað.
Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana Innlent Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Innlent Fleiri fréttir Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Sjá meira