Gandálfur kemur Hobbitanum til bjargar 19. mars 2012 22:00 The Hobbit er staðsettur í Southampton í Bretlandi.
Kvikmyndafyrirtæki í Hollywood og lítil krá í Bretlandi eiga í harðvítugri deilu um notkun á persónum úr hugmyndaheimi J.R.R. Tolkiens, höfundi Hringadróttinssögu og The Hobbit. Eigendur barsins, sem einfaldlega heitir „The Hobbit," eru sakaðir um að hafa brotið á höfundarrétti kvikmyndafyrirtækisins Saul Zaentz Company. Fyrirtækið hefur einkarétt á vörum tengdum Hringadróttinssögu og The Hobbit eftir Tolkien. Zaentz segir að honum sé skilt að takast á við brot á höfundarrétti tengdum Tolkien. „Stærð fyrirtækisins skiptir engu máli," sagði Zaentz. Hann sagði að fyrirtæki sitt yrði að setja fordæmi til að koma í veg fyrir önnur tilfelli höfundarréttarbrota. The Hobbit er staðsettur í Southampton í Bretlandi. Útlit barsins er innblásið af skáldverkum Tolkiens og eru styttur og ljósmyndir af persónum sagnanna víða á veggjum. „Þegar fyrirtækið er rótgróið er nauðsynlegt að það viðurkenni brotið," sagði Zaentz. „Þá getur það greitt árlegt gjald fyrir notkun á vörumerkjunum - 100 pund á ári." Rekstur hófst á Hobbitanum fyrir rúmum 20 árum. Helstu viðskiptavinir barsins eru stúdentar og ungir námsmenn í leit að ævintýrum. En á þessum myrku tímum í ríki Hobbitans hefur hjálp borist úr allra ólíklegustu átt. Gandálfur sjálfur, Sir Ian McKellan, hefur lýst yfir stuðningi við Hobbitann ásamt leikaranum Stephen Fry en hann er nú við tökur á The Hobbit á Nýja-Sjálandi. Þeir segja báðir að baráttan sé ójöfn og að kvikmyndafyrirtækið ætti að endurskoða málið. „Ég hef ekki farið á Hobbitann," sagði McKellan. „En það er augljóst að þetta er ekki staður þar sem illa á að fara með hobbita, álfa, dverga og seiðkarla." Fastagestir Hobbitans hafa stofnað stuðningshóp á samskiptasíðunni Facebook. Rúmlega 45.000 manns hafa lýst yfir stuðningi sínum við barinn. Hægt er að nálgast síðuna hér.
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Sjá meira