Erlent

Gekk berserksgang í breska þinghúsinu

Eric Joyce
Eric Joyce
Eric Joyce, þingmaður breska verkamannaflokksins, hefur verið leystur frá störfum eftir að hann var handtekinn í kjölfar slagsmála í breska þinghúsinu.

Áflogin áttu sér stað fyrir utan hinn svokallaða „Strangers bar" en barinn er aðeins opin þingmönnum í landi.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu réðst Joyce á þrjá menn. Hann gekk síðan berserksgang á barnum og þurfti nokkra menn til að handtaka hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×