Erlent

Ekkert lát á kuldakasti í Evrópu

Fannfergi er í Róm á Ítalíu og hefur ekki snjóað jafn mikið í höfuðborginni í 25 ár.
Fannfergi er í Róm á Ítalíu og hefur ekki snjóað jafn mikið í höfuðborginni í 25 ár. mynd/AP
Ekkert lát er á kuldakastinu sem nú gengur yfir Evrópu. Yfirvöld í Úkraínu segja að níu hafi látist í nótt og því hafa alls 131 látist í landinu.

Flestir hinna látnu voru heimilislaust fólk. 53 hafa látist í Póllandi vegna kuldans, þar af létust átta í nótt.

Samgöngur hafa farið úr skorðum víða í Evrópu. Helming ferða um Heathrow flugvöll í Lundúnum hefur verið aflýst í dag.

Fannfergi er síðan í Róm á Ítalíu og hefur ekki snjóað jafn mikið í höfuðborginni í 25 ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×