Erlent

Auka þvinganir gegn Íran

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Barack Obama hefur aukið þvinganir gegn Íran og taka þær nú til seðlabankans.
Barack Obama hefur aukið þvinganir gegn Íran og taka þær nú til seðlabankans. mynd/ afp.
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, ákvað í dag að allar eigur íranska ríkisins í Bandaríkjunum skuli frystar. Þannig hefur Obama sett harðari þvinganir á írönsk stjórnvöld, þar með talið seðlabankann.

Áhyggjur Ísraelsmanna og Vesturlanda hafa aukist af því að Íranar séu að þróa með sér kjarnorkuvopn, þótt stjórnvöld þar í landi segja að kjarnorkuáætlanir þeirra séu friðsælar.

Bandaríkin höfðu sett þvinganir á Írana í lok síðasta árs en þær aðgerðir náðu ekki til seðlabankans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×