Erlent

Gámaskip sigldi á járnbrautarbrú í Danmörku

Finnskt gámaskip sigldi á járnbrautarbrúna yfir Limfjorden milli Álasunds og Nörresundby í Danmörku seint í gærkvöldi og stórskemmdi brúna.

Litlu munaði að þetta óhapp ylli stórslysi því hraðlest, full af farþegum, á leið til Lindholm átti aðein eina mínútu ófarna að brúnni þegar flutningaskipið sigldi á hana. Hraðlestin náði að stöðvast með neyðarhemlun áður en hún kom að brúnni.

Í fréttum danskra fjölmiðla í morgun segir að það muni taka allt að því hálft ár að gera við brúna og koma umferð á um hana að nýju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×