Erlent

Réttarhöldum vegna olíulekans á Mexíkóflóa frestað

Réttarhöldum vegna olíulekans á Mexíkóflóa árið 2010 hefur verið frestað um viku en þau áttu að hefjast í dag í borginni New Orleans.

Frestunin er tilkomin svo deiluaðilar fái aukinn tíma til að semja um skaðabætur vegna lekans. Réttarhaldinu er ætlað að ákveða upphæð skaðabótanna og sektargreiðslur vegna þeirrar miklu mengunnar sem varð vegna lekans.

Olíufélagið BP hefur þegar greitt 7,5 milljarða dollara í hreinsun eftir mengunina og skaðabætur. Alls láku yfir 4 milljónir tunna af olíu út í Mexíkóflóann þegar Deepwater Horizon borpallurinn eyðilagðist í eldsvoða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×