Erlent

Ungar stúlkur ná kynþroskaaldri sífellt fyrr

BBI skrifar
Mynd úr safni.
Mynd úr safni. Mynd/Getty
Ungar stúlkur verða kynþroska sífellt fyrr á ævinni með hverjum áratug sem líður. Sérfræðingar eiga í erfiðleikum með að skýra þessa þróun.

Rannsóknir hafa lengi sýnt að kynþroskaaldur stúlkna verður sífellt lægri og nú benda nýlegar rannsóknir til þess að sama sé uppi á teningnum hvað stráka varðar.

Samkvæmt rannsóknum virðist kynþroskaaldur stúlkna hafa verið um 16,6 ár árið 1860. Síðan hefur hann stöðugt lækkað, var 14,6 ár árið 1920. Þróunin hélt áfram og nú virðast stúlkur komast á kynþroskaskeiðið í kringum 10,5 ár ára aldurinn.

Hvað veldur? Hvers vegna verða börn kynþroska sífellt fyrr á ævinni? Þessu hefur reynst erfitt að svara. Sérfræðingar héldu því lengi fram að þróunin héldist í hendur við batnandi heilsu fólks á Vesturlöndum og betri heilbrigðisskilyrði. Vandinn við þá skýringu er að þessi lækkandi kynþroskaaldur hefur haldið áfram að lækka stöðugt og virðist ekki ætla að stoppa.

Þetta veldur læknum áhyggjum og þeir eiga í erfiðleikum með að skýra lækkunina. Breytt matarræði hefur verið nefnt til sögunnar, meiri offita barna á Vesturlöndum, mengun af iðnaði eða lyfjum o.s.frv.

Sérfræðingum ber ekki saman um hvort þessi lækkandi kynþroskaaldur er á einhvern hátt slæmur fyrir börn.

Frá þessu er sagt í blaði The Guardian.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×