Manchester United lenti 2-0 undir en vann 3-2 sigur á Blackpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. janúar 2011 21:35 Dimitar Berbatov og Javier Hernandez fagna hér jöfnunarmarkinu. Mynd/AP
Dimitar Berbatov skoraði tvö mörk og súper-varmaðurinn Javier Hernandez það þriðja þegar Manchester United kom til baka eftir að hafa lent 2-0 undir á móti Blackpool og vann 3-2 sigur á Bloomfield Road í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Manchester United náði þar með fimm stiga forskoti á toppnum og hefur enn ekki tapað í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Blackpool átti fyllilega skilið að vera 2-0 yfir í hálfleik en það má aldrei afskrifa Englandsmeistara Manchester United eins og sást í síðari hálfleiknum. Charlie Adam sýndi afhverju Liverpool hefur svona mikinn áhuga á honum því hann átti frábæran leik á miðju Blackpool og bæði mörk liðsins komu eftir frábærar hornspyrnur frá honum. Craig Cathcart kom Blackpool í 1-0 á 15. mínútu þegar hann kom á fleygiferð og skallaði inn hornspyrnu frá Charlie Adam. Þetta var fyrsta alvöru sókn heimamanna í leiknum. DJ Campbell kom Blackpool síðan í 2-0 tveimur mínútum fyrir hálfleik þegar hann skallaði boltann inn af markteig eftir hornspyrnu frá Charlie Adam. Það tók Manchester United 72 mínútur að opna markareikninginn sinn þegar Dimitar Berbatov skoraði eftir fyrirgjöf Darren Fletcher. Javier Hernández hafði komið inn á sem varamaður fyrir Wayne Rooney á 66. mínútu og hann jafnaði leikinn á 74. mínútu eftir stungusendingu frá Ryan Giggs. Berbatov skoraði síðan sigurmarkið á 87. mínútu eftir sendingu frá Paul Scholes en þetta var tuttugasta markið hans á tímabilinu. Rafael da Silva meiddist illa á lokakaflanum og það var mikil töf á leiknum enda var uppbótartími upp á tíu mínútur.
Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Allt teymi Heimis framlengir Fótbolti Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið Fótbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn