Enski boltinn

Birmingham er hætt við að kaupa Robbie Keane

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Robbie Keane með David Beckham á æfingu hjá Tottenham.
Robbie Keane með David Beckham á æfingu hjá Tottenham. Mynd/Nordic Photos/Getty
Enska úrvalsdeildarliðið Birmingham hefur hætt við að kaupa írska landsliðsmanninn Robbie Keane frá Tottenham en Tottenham var búið að samþykkja sex milljón punda tilboð Birmingham í framherjann.

Niðurstaða fundar í dag, hjá stjórananum Alex McLeish, stjórnarformanninum Peter Pannu og yfirnjósnaranum Paul Montgomery, var að það væri peningalega ekki besti kosturinn í stöðunni að kaupa Keane.

Keane hefur aðeins tekið þátt í þrettán leikjum hjá Tottenham í vetur og hefur komið inn á sem varamaður í ellefu þeirra. Keane hefur ekki fengið mörg tækifæri síðan Harry Redknapp tók við Tottenham-liðinu en hann var lánaður til Celtic í fyrra.

Birmingham þarf nauðsynlega meiri ógn í sóknina en aðeins Wigan hefur skorað færri mörk í ensku úrvalsdeildinni í vetur og markahæsti leikmaður liðsins er miðjumaðurinn Craig Gardner með fimm mörk. Framherjarnir Nikola Zigic, Kevin Phillips og Cameron Jerome hafa aðeins skorað átta mörk saman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×