Van der Vaart fúll út í forráðamenn Tottenham Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. september 2011 19:45 Nordic Photos / Getty Images
Hollendingurinn Rafael van der Vaart er óánægður með þá ákvörðun að nafn hans var ekki á lista yfir þá leikmenn sem félagið má tefla fram í Evrópudeild UEFA í vetur. Van der Vaart á við meiðsli að stríða og var upphaflega talið að hann yrði frá í tvo mánuði. Því var ákvörðunin tekin um að hafa Van der Vaart ekki á leikmannalista félagsins í Evrópukeppninni. Ef hins vegar Tottenham kemst áfram í 32-liða úrslitin er hægt að bæta við þremur nöfnum til viðbótar á listann. Van der Vaart er meiddur aftan í læri en hefur verið í stífri meðhöndlun hjá þekktum landi í Hollandi að undanförnu. Bati hans hefur verið með undraverðum hætti og segir leikmaðurinn sjálfur að hann geti spilað aftur innan skamms. „Englendingar hafa ekki áhuga á Evrópudeildinni - aðeins ensku úrvalsdeildinni," er haft eftir Van der Vaart í The Sun í dag. „En ég hefði gjarnan viljað fá að spila í Evrópudeildinni enda hefði það hjálpað mér að finna taktinn á ný." Í viðtali sem birtist á heimasíðu Tottenham segir hann málið einkennilegt. „Maður hefði haldið að það hefði verið hægt að hafa samband við mig og spyrja mig út í málið. En þessu verður ekki breytt úr þessu og mun ég aðeins hugsa um að ná mér góðum fyrir leikinn gegn Liverpool." „Ég er nokkuð viss um að ég verði orðinn heill heilsu fyrir þann leik og er það þá Dick van Toorn að þakka," sagði Van der Vaart og átti þar við áðurnefndan lækni.
Mest lesið Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Sport Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ Körfubolti Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Enski boltinn Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina Handbolti KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Handbolti „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Körfubolti Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Fleiri fréttir Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Moyes ældi alla leiðina til Eyja Bróðirinn sendir Amorim skilaboð: „Frelsið Kobbie Mainoo“ „Besta frammistaða United undir stjórn Amorim“ Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Skemmtilegt fyrir fólkið heima og United verðskuldaði sigur Jafnt í ótrúlegum átta marka leik á Old Trafford Vildi ekki skýra ummælin um verstu 48 klukkutímana frekar Sjá meira