Segir Jackson hafa vætt rúmið 12. nóvember 2011 15:00 Murray mun að öllum líkindum maka krókinn vegna tengsla sinna við Michael Jackson. Hann var hins vegar sakfelldur fyrir að hafa valdið dauða Jacksons með gáleysi sínu. NordicPhotos/Getty
Conrad Murray er hvergi af baki dottinn þótt hann hafi verið sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi í vikunni. Í gærkvöldi sýndi bandaríska sjónvarpsstöðin MSNBC heimildarmynd eftir lækninn sem nefnist Michael Jackson and the Doctor: A Fatal Friendship, en ættingjar poppgoðsins reyndu af öllum mætti að stöðva sýningu myndarinnar í allan gærdag án árangurs. Tökur á heimildarmyndinni hófust um svipað leyti og Murray hóf störf hjá Jackson og þær héldu áfram eftir að poppstjarnan dó. Tom Roberts stýrði tökunum, en myndin er framleidd af Oktober Films og dreift af Zodiak Rights. Í myndinni kemur meðal annars fram að forstjóri AEG Live, Randy Phillips, hafi tekið Murray afsíðis og spurt hann hvers konar smámunasemi þetta væri í Jackson. „Hvað er þetta með manninn, hann er að verða heimilislaus, hann er með níu lífverði, hvað er þetta eiginlega. Ég borga fyrir þetta allt.“ Phillips neitaði reyndar í réttarhaldinu yfir Murray að hafa sagt þessi orð. Í heimildarmyndinni er einnig birt samtal tveggja lögfræðinga Jackson, þeirra Eds Chernoff og Michaels Flanagan. „Ég held að fjölmiðlar hafi gert Jackson skrýtnari en hann er í raun og veru,“ segir Chernoff en Flanagan hristir bara hausinn. „Skrýtnari en hann er? Þú ert að grínast, það er ekki hægt að vera skrýtnari en þetta.“ Murray heldur því jafnframt fram í myndinni að hann hafi skipað Jackson að þrífa svefnklefann sinn sökum þess að poppgoðið vætti enn þá rúmið sitt.
Mest lesið Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Innlent Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Íslandi Innlent Dagný Ósk látin Innlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Veturinn verði Rússum erfiður Erlent Björn Leví telur einsýnt að Guðmundur Ingi hafi verið beittur ofbeldi Innlent Rúta með skólabörn um borð fór út af veginum Innlent Fleiri fréttir Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Sjá meira