Mertesacker: Bremen kom í veg fyrir að ég færi til Arsenal í fyrra Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. september 2011 18:15 Per Mertesacker. Mynd/Nordic Photos/Getty
Þýski miðvörðurinn Per Mertesacker er strax orðinn fastamaður í Arsenal-vörninni en Arsene Wenger keypti hann frá Werder Bremen á lokadegi félagsskiptagluggans og hefur síðan teflt honum fram í öllum fimm leikjum liðsins. „Ég vissi fyrst af þessu þremur dögum áður en glugginn lokaði. Ég var þá í góðum gír með Bremen, var fyrrliði liðsins og var bara að einbeita mér að því að spila fyrir Werder Bremen," sagði Per Mertesacker. „Arsene Wenger hringdi þá í umboðsmanninn minn og sagði að ég gæti verið maður inn sem hann vantaði. Ég vissi að hann hafði áhuga á mér því hann reyndi líka að fá mig í fyrra en þá leyfði Klaus Allofs, framkvæmdastjóri Werder Bremen, mér ekki að fara," sagði Mertesacker. Mertesacker, sem átti 27 ára afmæli á miðvikudaginn, segist hafa lengi viljað spila í ensku úrvalsdeildinni. „Ég var búin að óska mér það lengi að fá tækifæri til að spila í ensku deildinni og því var það ekki erfitt að taka þess ákvörðun. Þetta er mikil áskorun fyrir mig og eftir að fjölskyldan tók vel í þetta þá ákvað ég að stökkva á þetta," sagði Mertesacker. Mertesacker fékk góð ráð frá Jens Lehmann en þeir léku á sínum tíma saman í þýska landsliðinu og þá talaði hann einnig við Mikael Silvestre, fyrrum leikmann Arsenal, sem lék með honum í fyrra. Framundan er stærsti leikur Per Mertesacker fyrir Arsenal þegar liðið sækir heim erkifjendur sína í Tottenham á White Hart Lane. „Þetta er minn fyrsti stórleikur með Arsenal og margir hafa verið að segja mér hversu miklu máli hann skiptir félagið. Þetta er mjög mikilvægur leikur fyrir mig og Arsenal og verður ný reynsla fyrir mig því það er enginn sambærilegur leikur í Þýskalandi," sagði Mertesacker.
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Sport Fleiri fréttir Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Sjá meira