Erlent

Palestína nú meðlimur UNESCO

Frá fundi UNESCO í París þegar kosið var um aðild Pelastínu að samstökunum.
Frá fundi UNESCO í París þegar kosið var um aðild Pelastínu að samstökunum.
Palestína fékk inngöngu í UNESCO í dag. Mikill fögnuður braust út þegar kosningunni var lokið. 81 atkvæði þurfti til að tryggja aðild Palestínu að UNESCO en alls greiddu 107 fulltrúar atkvæði með aðild á meðan 14 fulltrúar voru á móti. 52 sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.

Vísinda-, mennta- og menningarstofnun Sameinuðu Þjóðanna stuðlar að friði með því efla alþjóðlegt samstarf á sviði menningar og vísinda og sækist þannig eftir því að tryggja mannréttindi og réttlæti.

Þingmenn í Bandaríkjunum voru mótfallnir aðild Palestínu að UNESCO og sögðu í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar að hætt yrði við fjárframlög Bandaríkjanna til stofnunarinnar. Stuðningur Bandaríkjanna er gríðarlega mikilvægur UNESCO og er alls 80 milljón dollarar á hverju ári.

Bandaríkjamenn hafa lengi gagnrýnd starfshætti UNESCO. Bandaríkin sögðu sig úr UNESCO þegar Ronald Reagen gengdi forsetaembætti en gengu aftur inn í sambandið þegar George W. Bush var forseti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×