Fabregas spilaði meiddur gegn Barcelona - ekki með um helgina Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. mars 2011 15:30 Nordic Photos / Getty Images
Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal, hefur greint frá því að hann meiddist snemma í leiknum gegn Barcelona fyrr í vikunni og spilaði þjáður eftir það. Barcelona vann leikinn, 3-1, og gerði Fabregas slæm mistök í aðdraganda fyrsta marks Börsunga. Þá reyndi hann hælsendingu rétt utan vítateigs Arsenal en hún mistókst og Lionel Messi náði að koma sínum mönnum yfir. Fabregas var tæpur fyrir leikinn vegna meiðsla aftan í læri og þessi sömu meiðsli tóku sig upp eftir aðeins fimmtán mínútur. Stjóri Arsenal, greindi svo frá því í dag að Fabregas myndi ekki spila með í leiknum gegn Manchester United í fjórðungsúrslitum ensku bikarkeppninnar um helgina. „Það er synd vegna þess að mér leið virkilega vel í upphafi leiksins," sagði Fabregas í samtali við spænska fjölmiðla. „En ég fann fyrir sársauka eftir fimmtán mínútur og vissi þá að þetta væri búið. Löngunin til að spila var þó yfirsterkari þar til að ég neyddist á endanum til að fara út af," bætti hann við en honum var skipt af velli á 78. mínútu. „Fabregas mun kannski missa af næstu tveimur leikjum,“ sagði Wenger um meiðsli Fabregas. Markvörðurinn Wojciech Szczesny meiddist einnig í leiknum gegn Barcelona og bætti Wenger við að það væri eitthvað lengra í hann. „Hann verður frá í einhvern tíma,“ sagði Wenger. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að Robin van Persie getur spilað með Arsenal um helgina.
Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Sérlega gleðileg jól í ár og langt hlé á enda Sport Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Körfubolti „Allir eru hér að skemmta sér í sátt og samlyndi“ Sport „Við erum að spila hérna á móti Paragvæ nánast“ Sport Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Wolfsburg með nýjustu fréttir af Eriksen Fótbolti Fleiri fréttir Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Sjá meira