Finnar rugluðust á eldflaugum og flugeldum 23. desember 2011 08:21 Patriot flaugarnar voru á leið til Suður Kóreu.
Leyndardómurinn um hergögnin í dularfullu flutningaskipi í finnskri höfn hefur verið leystur. Um þýðingarvilu var að ræða. Patriot loftvarnaflaugarnar og sprengiefnið sem finnsk hafnaryfirvöld fundu um borð í flutningaskipinu MS Thor Liberty sem var á leið til Suður-Kóreu og Kína var löglegur farmur eftir allt saman. Farmurinn kom yfirvöldum í finnsku hafnarborginni Kotka á óvart enda var illa um hann búið til slíkrar sjóferðar. Sprengiefnið, sem var um 160 tonn var til að mynda á opnum pallettum en ekki í gámum. Þá sögðu Finnarnir að flaugarnar, sem eru háþróuð hergögn, hafi verið merktar í farmskrá sem flugeldar. Það hefur sennilega kveikt viðvörunarljós því erfitt er að sjá fyrir sér mikinn gróða í því að flytja flugelda til Kína. Málið vakti mikla athygli í gær og voru áhafnarmeðlimir skipsins, sem eru flestir frá Úkraínu, hnepptir í varðhald. Nú hafa Þjóðverjar hinsvegar upplýst að flaugarnar séu komnar frá þeim og að þær hafi verið á leið til Suður Kóreu í samræmi við löngu gerðan samning. Skýring mun einnig vera komin á sprengiefninu, en það er á leið til Kína þar sem það verður notað við framkvæmdir. Hvað varða ruglinginn með flugeldana sem áttu að vera í kössunum virðist vera sem um þýðingarvillu hjá finnsku tollvörðunum sé að ræða. Á kössunum stóð enska orðið Rockets, eða eldflaugar, en Finnarnir þýddu það sem rakettur, líklega í ljósi þess að áramótin nálgast.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Sjá meira