Hefði aldrei átt að fara til Íraks 23. desember 2011 03:15 Hermaðurinn, lengst til vinstri á myndinni, mætir til undirbúningsdómþings í Bandaríkjunum. nordic photos/AFP
Verjendur Bradley Manning, hermannsins sem sakaður er um að hafa lekið ógrynni leyniskjala til Wikileaks, kölluðu aðeins tvö vitni fyrir í undirbúningsdómþingi, sem lauk í gær. Innan nokkurra vikna verður svo ákveðið hvort hann verði leiddur fyrir herrétt. Verjendurnir byggðu mál sitt einkum á því að Manning eigi við andlega erfiðleika að stríða og hefði því ekki átt að hafa aðgang að leynilegum skjölum. Reyndar hefði alls ekki átt að senda hann til herþjónustu í Írak. Vitnin tvö, sem verjendur kölluðu til, eru annars vegar liðþjálfi sem varð vitni að skapofsakasti Mannings, hins vegar höfuðsmaður sem hafði Manning í liði sínu. Verjendur segja Manning hafa tekið afrit af hundruðum þúsunda leyniskjala, meðal annars frá sendiráðum Bandaríkjanna víða um heim, og myndbandsupptökum af þyrluárás í Bagdad sem varð ellefu manns að bana. Julian Assange, stofnandi Wikileaks, hefur aldrei staðfest að það hafi verið Manning sem lak þessum skjölum. Assange hefur hins vegar sagt að birting leyniskjalanna hafi átt sinn þátt í að kveikja uppreisnarhreyfingu í arabalöndunum. Stuttu áður en „arabíska vorið“ hófst í Túnis fyrir nánast réttu ári höfðu birst leyniskjöl sem staðfestu spillingu þáverandi forseta landsins, sem hrökklaðist frá völdum fáeinum vikum síðar.- gb
Mest lesið Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Dagný Ósk látin Innlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Erlent „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Innlent Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu Innlent Íslenskir stjörnukokkar meðal kokka sem mótmæla fiski úr sjókvíaeldi Innlent Fleiri fréttir Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Sjá meira