Arsenal náði bara markalausu jafntefli á móti Sunderland Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2011 16:54 Mynd/Nordic Photos/Getty
Arsenal tapaði dýrmætum stigum í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í dag þegar liðið náði aðeins markalausu jafntefli á heimavelli á móti Sunderland. Arsenal átti möguleika á að minnka forskot United í eitt stig með sigri en nú getur United náð sex stiga forskoti með sigri á Liverpool á morgun. Arsenal var í stórsókn í seinni hálfleiknum en tókst ekki að brjóta vörn Sunderland á bak aftur. Marouane Chamakh komst næst því að skora þegar hann skallaði í slána og þá var mark dæmt af Andrey Arshavin vegna vafasamrar rangstöðu. Bolton vann ótrúlegan 3-2 sigur á Aston Villa sem komst tvisvar yfir í leiknum. Jussi Jaaskelainen varði víti frá Ashley Young þegar hann gat komið Aston Villa í 3-1 og í staðinn jafnaði Gary Cahill fimm mínútum síðar með sínu öðru marki í leiknum. Það var síðan Ivan Klasnic sem skoraði sigurmarkið á 86. mínútu.Mynd/APBobby Zamora kom inn á sem varamaður og tryggði Fulham 3-2 sigur á Blackburn með marki úr vítaspyrnu þegar ein mínúta var til leiksloka. Damien Duff er sjóðheitur þessa dagana og hann kom Fulham tvisvar yfir en Blackburn náði að jafna í bæði skiptin. Eiður Smári Guðjohnsen kom ekkert við sögu í leiknum. Demba Ba skoraði í þriðja leiknum í röð og West Ham vann sinn annan leik í röð þegar liðið vann 2-0 sigur á Stoke á Upton Park. Ba kom West Ham í 1-0 á 21. mínútu og Manuel Da Costa bætti við öðru marki átta mínútum síðar. Thomas Hitzlsperger innsiglaði síðan sigurinn átta mínútum fyrir leikslok. Phil Jagielka tryggði Everton 2-1 útisigur á Newcastle en Everton skoraði tvö mörk með fimm mínútna milliili í fyrri hálfleik eftir að Leon Best hafði komið Newcastle yfir. Úrslit og markaskorarar í ensku úrvalsdeildinni í dag:Mynd/APBirmingham-West Bromwich 1-3 0-1 Youssuf Mulumbu (47.), 1-1 Jean Beausejour (48.), 1-2 James Morrison (58.), 1-3 Paul Scharner (72.)Arsenal-Sunderland 0-0Bolton-Aston Villa 3-2 0-1 Darren Bent (15.), 1-1 Gary Cahill (45.+2), 1-2 Marc Albrighton (64.), 2-2 Gary Cahill (74.), 3-2 Ivan Klasnic (86.)Fulham-Blackburn 3-2 1-0 Damien Duff (37.), 1-1 Grant Hanley (46.), 2-1 Damien Duff (59.), 2-2 Junior Hoilett (65.), 3-2 Bobby Zamora, víti (89.)Newcastle-Everton 1-2 1-0 Leon Best (23.), 1-1 Leon Osman (31.), 1-2 Phil Jagielka (36.)West Ham-Stoke 3-0 1-0 Demba Ba (21.), 2-0 Manuel Da Costa (29.), 3-0 Thomas Hitzlsperger (82.)
Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real Fótbolti Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Enski boltinn „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Fótbolti Fleiri fréttir Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar Sjá meira