Íraksstjórn vill fá Hashemi afhentan 22. desember 2011 05:15 Hashemi eftirlýstur Fréttir af flótta og handtökuskipun á hendur aðstoðarforsætisráðherra landsins hafa vakið mikla eftirtekt.nordicphotos/AFP
Spenna milli þjóðernishópanna þriggja í Írak magnast á ný, strax og Bandaríkjaher yfirgefur landið. Forsætisráðherrann, sem er sjía-múslimi, krefst þess að kúrdar láti af hendi aðstoðarforsætisráðherrann, sem er súnní-múslimi. Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, krefst þess nú að yfirvöld sjálfstjórnarhéraðs kúrda í norðurhluta landsins, láti af hendi Tarik al-Hashemi aðstoðarforsætisráðherra, sem sakaður er um alvarlega glæpi. Hashemi, sem er súnní-múslimi, flúði norður í kúrdahéröðin á sunnudag, daginn áður en handtökuskipun var gefin út á hendur honum. Hann er sakaður um að hafa verið með morðsveitir á sínum snærum, sem sendar voru til höfuðs embættismönnum stjórnarinnar. Hashemi segir þessar ásakanir uppspuna einan og runnar undan rifjum pólitískra andstæðinga sinna, einkum forsætisráðherrans sjálfs, sem er sjía-múslimi. Hann segir að þetta mál muni splundra viðkvæmu sáttaferli milli sjía og súnnía, nú þegar Bandaríkjaher er nýfarinn frá landinu. Al-Maliki svarar því til að Hashemi muni fá sanngjörn réttarhöld, rétt eins og Saddam Hussein fékk á sínum tíma. Hann minnir kúrda á að Írak sé eitt og óskipt land. Yfirvöld í kúrdahéruðunum eigi því að afhenta Hashemi til íraskra stjórnvalda. „Ef þeir afhenda hann ekki eða leyfa honum að flýja eða komast undan, þá mun það leiða af sér vandamál,“ sagði Maliki. Sá möguleiki er fyrir hendi að Hashemi flýi yfir til kúrdahéraðanna í Tyrklandi, handan landamæranna. Meðan Saddam Hússein var við völd í Írak nutu súnní-múslimar þess, þótt í minnihluta væru, enda var hann súnníi sjálfur. Vegur sjía-meirihlutans hefur hins vegar vaxið eftir fall Saddams og deila nú þessir tveir hópar með sér völdum. Ásakanirnar á hendur varaforsetanum vöktu upp vangaveltur um að Maliki forsætisráðherra ætli með þessu fyrst og fremst að treysta eigin völd á kostnað sjía-múslima. „Ég leyfi mér ekki að prútta um blóð Íraka,“ sagði Maliki og stendur fast á því að Hashemi fái ekki að komast upp með svo alvarlega glæpi. Síðustu bandarísku hermennirnir hafa undanfarna yfirgefið Írak eftir nærri níu ára stríð, sem hófst í mars árið 2003. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Innlent Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Erlent Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Innlent Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Innlent „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Innlent Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Fleiri fréttir Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Sjá meira