Mun hrapa til jarðar í janúar 20. desember 2011 11:00 Brostnar Vonir Rússneska geimvísindastofnunin hefur gefið upp von um að koma Fóbos-Grunt af stað á ný.Fréttablaðið/AP
Rússneska geimfarið Fóbos-Grunt, sem hefur verið fast á lágri jarðbraut síðan í nóvember eftir tæknileg mistök, mun sennilega hrapa til jarðar um miðjan næsta mánuð. Farið átti að fara til Fóbosar, annars af tunglum Mars, lenda þar og snúa til baka með jarðvegssýni. Vegna bilana í geimskoti náði farið ekki út fyrir gufuhvolfið og endurteknar tilraunir vísindamanna hjá rússnesku geimvísindastofnuninni, til að koma því af stað aftur, voru árangurslausar. Talsmaður stofnunarinnar lýsti stöðu mála í liðinni viku og sagði að jarðarbúum yrði engin hætta búin þrátt fyrir að farið innihaldi geislavirk efni. Þau muni brenna upp þegar það hrapar. Þessi uppákoma er mikið áfall fyrir Rússa. Fyrir utan kostnaðinn, sem er metinn á þriðja tug milljarða, verða þeir fyrir álitshnekki þar sem þetta var fyrsta tilraun Rússa til að senda rannsóknarfar út í geim frá árinu 1996, en far sem átti að lenda á Mars og senda heim upplýsingar brann upp í geimskotinu sökum vélarbilunar. Þessi ógæfa veltir upp alvarlegum efasemdum um stöðu geimiðnaðarins í Rússlandi, en embættismenn segja úreltum tækjabúnaði og takmarkaðri nýliðun í faginu um að kenna. Vísindamönnum leikur forvitni á að vita hvers eðlis Fóbos er. Hvort um sé að ræða smástirni sem hafi fest á braut um Mars, en aðrir vilja meina að Fóbos sé hluti af Mars sem hafi losnað frá eftir árekstur við annan hnött. - þj
Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Fleiri fréttir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Sjá meira